Hvað gerist næst
Gudni Hjoll Ads C
Guðni Hjörleifsson

Aðsend grein

Guðni Hjörleifsson

Maður heyrir af því að bókunarkerfið er komið í lag sem er mjög gott og það hefur verið erfitt fyrir starfsfólk Herjólfs að vinna við þessar aðstæður. En þá skaut upp þeirri hugsun. Hvað bilar næst, kannski mótorinn á hinni skrúfunni eða ?????. Á  meðan er Herjólfur 3 ekki með haffærnisskírteini enda úr sér genginn blessaður. Það þarf annað skip sem ristir svipað og núverandi skip en með meiri ganghraða og gæti siglt á móti Herjólfi 4 yfir álagstímann og leyst núverandi skip af hólmi ef bilun kemur uppá. Það þýðir ekki fyrir stjórnvöld að henda litlum plástrum annað kastið í okkur. Þarna þurfum við allar hendur á dekk.

Fráfarandi bæjarstjórn E listans og H listans (D) henda frá sér ýmsum óvönduðum ákvörðunum eins og byggingu við íþróttahúsið sem bæði íþróttahreyfingin og starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar eru ósátt við. Fiskiðjuhúsið selt á undirverði að margra mati og ýmis starfsemi þar er í óvissu.

Einnig hefur Viska selt sitt húsnæði þar sem góð starfsemi listafólks hefur haft aðsetur og veldur því fólki kvíða vegna óvissu.

Nú tala fulltrúar flokka í öllum framboðum fyrir vandaðri vinnubrögðum og viðurkenna þar með að ekki hefur verið vandað nægilega til verka undanfarin ár.

En er þá ekki kominn tími á breytingar hér. M listinn býður fram hér í fyrsta sinn og boðar breytt vinnulag og meiri ábyrgð.

Látum hjartað ráða.   SETJUM X VIÐ M.

 

Guðni Hjörleifsson

Höfundur skipar 5. sæti á lista M.

Nýjustu fréttir

Hvað gerist næst
Jóhann Ingi skipar þriðja sætið á lista Miðflokksins
Líflegur framboðsfundur Eyjafrétta – upptaka
Herjólfur fer næstu ferðir til Þorlákshafnar
Sterk hagsmunagæsla
Hildur Rún skipar fjórða sæti á lista Eyjalistans 
Gústav Axel með kraftmikinn sjávarréttaseðil á Einsa Kalda á MATEY
Öflug menning mótar lífið
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.