Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Útlaginn hefur gefið út nýtt lag og segir útgáfuna mikilvægan áfanga eftir langt ferðalag.. Ljósmynd/aðsend

Tónlistarmaðurinn Jóhannes Jensson hefur sent frá sér nýtt lag undir listamannsnafninu Útlaginn. Í samtali við Eyjafréttirr segir hann að um sé að ræða draum sem loksins hafi ræst eftir langt og tilfinningaríkt ferli.

„Loksins, eftir langa bið, er lítill draumur orðinn að veruleika,“ segir Jóhannes. Hann segir erfitt að lýsa því með orðum hvað það þýði fyrir sig að geta loksins deilt laginu með öðrum.

„Það eru ótal stundir, tilfinningar, efasemdir og vonir sem liggja á bak við þetta ferðalag, og í dag fæ ég loksins að leyfa ykkur að heyra það,“ segir hann.

Jóhannes þakkar jafnframt þeim sem hafa stutt sig á leiðinni og segir stuðninginn hafa skipt miklu máli. „Ég er ótrúlega þakklátur fyrir alla sem hafa stutt mig, hvatt mig áfram og trúað á mig á leiðinni. Án ykkar hefði þetta aldrei orðið að veruleika.“

Hann segist vona að lagið nái til hlustenda og finni sér stað hjá fólki, jafnvel þótt tónlistarsmekkur sé ólíkur.

„Ég vona innilega að lagið snerti ykkur á einhvern hátt og finni sér stað hjá ykkur. Og ef þetta er ekki ykkar tebolli, þá er það líka alveg í lagi. Takk samt fyrir að gefa laginu séns og taka ykkur tíma til að hlusta.“ Að lokum lítur hann bjartsýnn fram á veginn: „Þetta er bara byrjunin.“

Play Video

Nýjustu fréttir

Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Frá lofti og landi: Uppbygging Laxeyjar tekur á sig mynd
Sólarlag Guðrúnar kemur út í dag
ÍBV stelpurnar mæta Þrótti R. í undanúrslitum Mjólkurbikarsins
Karfi og blandaður afli hjá Eyjunum
Innblásturinn er alls staðar
Krakkafjör í Hvítasunnukirkjunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.