Hélt að verið væri að gera grín í sér
lotto
Mynd/samsett

Einn heppinn og tryggur áskrifandi vann tvöfaldan fyrsta vinning í Lottó síðasta laugardag og fékk rúmar 27,7 milljónir króna í sinn hlut. Vinningurinn er skattfrjáls og kemur sér einstaklega vel þar sem vinningshafinn er að stíga sín næstu skref á fasteignamarkaðinum.

Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að það hafi tekið dágóða stund fyrir vinningshafann að átta sig á fréttunum því þegar haft var samband með gleðifréttirnar var hann nefnilega alveg sannfærður um að einhver væri að atast í honum.

„Ég hélt bara að þetta væri eitthvað grín,“ sagði hann hlæjandi og bætti við að hann hefði enga hugmynd haft um vinninginn þar sem hann er með miða í áskrift. „Ég var ekki búinn að fá tölvupóst eins og venjulega þegar ég vinn, þannig að ég var alveg viss um að þetta gæti ekki verið rétt.“

Skýringin er sú að þegar um stærri vinninga er að ræða eru ekki sendar tilkynningar í tölvupósti heldur haft beint samband við vinningshafa persónulega til að færa þeim fréttirnar.

Þegar loks hafði  tekist að sannfæra þann heppna um að hér væri ekkert grín á ferðinni, var hans fyrsta verk að hringja í eiginkonu sína og segja henni tíðindin. Þá tók ekki betra við. „Hún trúði mér ekkert frekar en ég trúði þessu fyrst sjálfur,“ segir hann og hlær. „Hún var alveg viss um að ég væri að reyna að vera fyndinn.“

Eins og áður sagði kemur vinningurinn á besta tíma fyrir hjónin sem hafa verið að stíga sín næstu skref á fasteignamarkaðinum. Að þeirra sögn mun þessi óvænti vinningur létta mikið undir með þeim og opna fleiri áhugaverð tækifæri.

Nýjustu fréttir

Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Frá lofti og landi: Uppbygging Laxeyjar tekur á sig mynd
Sólarlag Guðrúnar kemur út í dag
ÍBV stelpurnar mæta Þrótti R. í undanúrslitum Mjólkurbikarsins
Karfi og blandaður afli hjá Eyjunum
Innblásturinn er alls staðar
Krakkafjör í Hvítasunnukirkjunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.