Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
default
Herjólfsdalur. Ljósmynd/aðsend

Undirbúningur fyrir Þjóðhátíð 2026 hefur gengið einstaklega vel og langtímaspár benda til þess að veðrið verði með besta móti. Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, segir þó að það sé fyrst og fremst fólkið, samheldnin og gestrisnin sem geri hátíðina að því sem hún er.

„Hundruð sjálfboðaliða, starfsmanna og samstarfsaðila hafa lagt hönd á plóg síðustu vikur og það er ótrúlegt að fylgjast með því sem samfélagið okkar getur afrekað þegar við vinnum saman,“ segir Jónas í kveðju fyrir hönd þjóðhátíðarnefndar.

Hann segir langtímaspár hagstæðar og allt benda til þess að veðrið verði með besta móti. Reynslan hafi þó kennt Eyjamönnum að veðrið ráði ekki úrslitum um hvernig til tekst.

Þjóðhátíðarandinn stóð af sér rigningu og storm

Jónas rifjar upp að í fyrra hafi hátíðargestir fengið bæði rigningu og storm. Þrátt fyrir það hafi brosin ekki horfið, hjálpsemin verið alls staðar og gestir fundið fyrir þeirri hlýju og gestrisni sem einkenni Þjóðhátíð.

„Það er þessi andi sem við ætlum að taka með okkur inn í Þjóðhátíð 2026,“ segir hann.

Fjölbreytt tónlistardagskrá verður í Herjólfsdal um verslunarmannahelgina. Meðal þeirra sem koma fram eru Herra Hnetusmjör, Birgitta Haukdal, Aron Can, Birnir, Friðrik Dór, Jón Jónsson, Stuðlabandið, Pálmi Gunnarsson, Retro Stefson og Hipsumhaps. Þá mun Ágúst Brynjarsson leiða Brekkusönginn.

Fólkið og samveran í fyrirrúmi

Jónas segir að þótt dagskráin sé glæsileg sé það fólkið sem skipti mestu máli. Þjóðhátíð snúist um endurfundi, vináttu, fjölskyldur, nágranna, gamlar sögur og nýjar minningar.

„Fyrir hönd þjóðhátíðarnefndar vil ég þakka öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum við undirbúninginn. Nú er komið að lokasprettinum. Tökum vel á móti gestunum okkar, hugsum hvert um annað og sköpum saman enn eina ógleymanlega Þjóðhátíð,“ segir Jónas að lokum.

Nýjustu fréttir

Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní
Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.