Föstudagskvöldið í Dalnum í máli og myndum
Herjólfsdalur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur

Fjölmenni var í Herjólfsdal í gærkvöldi þegar fyrsta kvöldvaka Þjóðhátíðar fór fram í góðri stemningu.

Mucky Muck, Daniil og Hipsumhaps stigu á svið og héldu uppi fjörinu áður en kom að frumflutningi þjóðhátíðarlagsins í ár. Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör fluttu lagið við góðar undirtektir hátíðargesta.

Hápunktur kvöldsins var síðan þegar kveikt var í brennunni á Fjósakletti klukkan 23. Logarnir lýstu upp Herjólfsdal og sköpuðu þá einstöku stemningu sem fylgir föstudagskvöldinu á Þjóðhátíð.

Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, var á ferðinni með myndavélina og fangaði stemninguna í Dalnum. Hér má sjá myndasyrpu hans frá föstudagskvöldinu. Hægt er að smella á myndirnar til að opna þær í fullri upplausn.

Nýjustu fréttir

Þjóðhátíðarleikur á Hásteinsvelli í dag – Fram mætir í heimsókn
Dagskrá laugardags á Þjóðhátíð
Hvítu tjöldin – Skinkuhornin hafa fylgt Þjóðhátíðinni frá árdaga
Föstudagskvöldið í Dalnum í máli og myndum
Doctor Victor snýr aftur á stóra sviðið
Frá Dauðagámnum í Hvíta tjaldið
Mikið fjölmenni við setningu Þjóðhátíðar
Hvítu tjöldin – Baksturinn kemur fjölskyldunni í Þjóðhátíðargírinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.