ÍBV semur við markmann frá Serbíu
Ivan Vidrih til vinstri. Mynd/ÍBV knattspyrna

Knattspyrnudeild ÍBV hefur samið við serbneska markmanninn Ivan Vidrih. Hann hefur nú þegar fengið félagsskipti og má vera í leikmannahópi ÍBV þegar þeir spila gegn Víking Reykjavík á sunnudaginn. Fótbolti.net greindi frá.

Vidrih sem er 21 árs kemur frá FK Buducnost sem leikur í þriðju efstu deild í Serbíu. Hann er uppalinn í Partizan og hefur leikið í Serbíu og á Spáni á ferlinum.

Markmaðurinn Marcel Zapytowski yfirgaf herbúðir ÍBV á dögunum og samdi við Egersund sem leikur í næst efstu deild í Noregi. Marcel átti gott tímabil í fyrra með ÍBV en missti byrjunarliðssæti á þessu tímabili og spilaði aðeins sjö leiki í sumar.

ÍBV heimsækir Víking R. í 18. umferð Bestu deildar karla sunnudaginn 9. ágúst kl. 18:00.

Nýjustu fréttir

Góð veiði hjá Vestmannaey og Bergey
Vill gera sérfræðiþekkingu í íþróttum aðgengilegri fyrir alla
Guðmundur Tómas nýr meistari Vöruhúsdeildarinnar
Útboð heilsuræktar – hvað sýna fjárhagsgögnin?
Vikan í Eyjum: Skipalyftan 45 ára, fullt hús hjá Grýlu og sigur á Akureyri
Walmart skoðar aðstæður í Vestmannaeyjum
Íþróttamaður mánaðarins – Edda Dögg Sindradóttir
Grýla er komin með nóg af aðgerðarleysi Jólasveinanna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.