Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga, og Árni Sigfússon, stjórnarformaður félagsins, við rannsóknarboranir í Landeyjasandi. Ljósmynd/aðsend.

Eyjagöng ehf. hafa gengið frá samningi við norska ráðgjafarfyrirtækið Norconsult um gerð heildstæðs fýsileika- og kostnaðarmats vegna fyrirhugaðra neðansjávarganga milli lands og Vestmannaeyja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Þar segir að verkefnið sé mikilvægur áfangi í því að kortleggja tæknilegar forsendur samgöngubótar sem gæti tryggt heilsársvegtengingu milli lands og Eyja.

Norconsult býr yfir víðtækri reynslu af hönnun og mati á flóknum neðansjávargöngum, meðal annars í Noregi og Færeyjum, auk annarra verkefna á alþjóðavísu. Fyrirtækið mun nýta nýjustu gögn og alþjóðlega sérþekkingu til að meta raunhæfni verkefnisins. Matið mun meðal annars byggjast á jarðfræðigögnum sem Eyjagöng hafa aflað í sumar og helstu stöðlum um öryggiskröfur í jarðgöngum. Jafnframt verður áætlaður framkvæmdakostnaður metinn.

Samhliða þessu hafa innlendir ráðgjafar félagsins, verkfræðistofurnar Efla og Völuberg, haft yfirumsjón og eftirlit með rannsóknarborunum á svæðinu. Sérfræðingar þeirra vinna nú að samantekt á jarðfræðilegum forsendum og munu jafnframt skila ítarlegri kostnaðar- og fýsileikagreiningu vegna framkvæmdarinnar, eins og áður hefur komið fram.

Í tilkynningunni segir að markmið samstarfsins sé að nýta þekkingu og reynslu einnar af færustu verkfræðistofum heims á sviði jarðgangagerðar. Jafnframt eigi vinna Norconsult að styrkja og skerpa þá greiningu sem Efla og Völuberg vinna nú fyrir Eyjagöng. Þannig verði unnin tvö sjálfstæð kostnaðarmöt fyrir verkefnið.

Félagið áætlar að kynna niðurstöður fýsileikamatsins og annarra greininga undir lok árs.

Rannsóknarborunum í Landeyjasandi er ætlað að ljúka undir lok þessa mánaðar. Alls hafa verið boraðir 225,5 metrar af þeim 300 metrum sem fyrirhugaðir eru. Fyrr í sumar fór jafnframt fram rannsókn á hafsbotninum í Eyjasundi auk kjarnaborunar í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári
Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.