Kristín Þórðardóttir hefur verið skipuð í nýtt embætti sýslumanns. Hún tekur við stöðunni frá og með deginum í dag, þann 21. ágúst. Sýslumannsembættið var auglýst laust til umsóknar í lok mars og sóttu sjö um. Skipuð var sérstök hæfnisnefnd til að meta hæfni umsækjenda og ráðherra og ráðuneytisstjóri tóku viðtöl við þá tvo umsækjendur sem metnir voru hæfastir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.
Kristín hefur verið sýslumaður á Suðurlandi undanfarin níu ár og auk þess verið settur sýslumaður í Vestmannaeyjum, nú síðast frá árinu 2023. Kristín hefur jafnframt verið formaður Sýslumannaráðs frá árinu 2018. Hún lauk kandídatsprófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2006. Árið 2025 lauk hún stjórnunarnámi frá Said Business School við University of Oxford. Þá hefur hún hefur lagt stund á stjórnunarnám í Endurmenntun Háskóla Íslands og Opna háskólanum.
„Það er mér heiður að fá að takast á við þetta stóra og mikilvæga verkefni og ég er þakklát fyrir það traust sem mér og mínum störfum hingað til er sýnt með skipun minni. Unnin hefur verið mikil undirbúningsvinna frá því að lögin voru samþykkt og góður grunnur verið lagður að vegferðinni undanfarin ár. Nú tekur við nýtt tímabil í sameiningarferlinu þar sem áfram verður lögð mikil áhersla á góða samvinnu og samstarf við reynslumikið og vandað starfsfólk embættanna,“ segir Kristín Þórðardóttir, nýr sýslumaður. „Fyrsta verkefnið verður að heimsækja allar starfsstöðvar embættisins og kynnast enn betur því öfluga starfsfólki sem mun starfa við eitt sameinað embætti hringinn í kringum landið.“
Frumvarp dómsmálaráðherra um sameinað embætti sýslumanns var samþykkt á Alþingi í febrúar síðastliðnum. Með lögunum verða núverandi níu sýslumannsembætti sameinuð í eitt öflugt embætti sýslumanns frá og með 1. janúar 2027. Þá verður landið eitt umdæmi með starfsstöðvar um land allt. Þetta er stór og mikil breyting í íslenskri stjórnsýslu og mun Kristín vinna ásamt ráðuneytinu að undirbúningi og innleiðingu sameiningarinnar.
„Þjónusta ríkisins á ekki að ráðast af póstnúmeri. Með einu öflugu embætti tryggjum við jafnari og betri þjónustu við almenning, betri nýtingu fjármuna og sterkari stjórnsýslu um land allt. Við fækkum ríkisstofnunum um 5% en byggjum um leið upp sterkara sýslumannsembætti fyrir landið allt,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Starfsstöðvar hins nýja embættis verða óbreyttar við sameininguna og starfsfólk færist til hins nýja embættis. Ekki eru fyrirhugaðar umfangsmiklar breytingar á núverandi skipulagi þeirra eða þjónustuframboði. Markmiðið er að tryggja sem jafnast aðgengi að grunnþjónustu um land allt ásamt því að efla samvinnu og sérhæfingu.
Frá því lögin voru samþykkt hefur farið fram umfangsmikill undirbúningur í dómsmálaráðuneytinu til að tryggja að sameiningin gangi vel fyrir sig. Verkefnið er viðamikið, enda eru í dag 255 stöðugildi á 27 starfsstöðvum sýslumannsembættanna um land allt.
Verkefnastjóri hefur verið starfandi í ráðuneytinu til að halda utan um undirbúning sameiningarinnar. Jafnframt hafa verið að störfum verkefnisstjórn, mannauðsnefnd og vinnuhópar með fulltrúum starfsfólks sem hafa unnið að greiningum og tillögum fyrir hið nýja embætti. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á upplýsingagjöf, samráð og að reynsla og sjónarmið starfsfólks nýtist við undirbúninginn.
Niðurstöður vinnunnar verða lagðar fyrir nýjan sýslumann og munu mynda mikilvægan grunn að mótun og skipulagi hins nýja embættis, segir í tilkynningunni.