Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Herj Innsigling Horgeyrargard Tms Cr
Herjólfur siglir inn Vestmannaeyjahöfn. Fyrir framan ferjuna má sjá Hörgaeyragarð. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Stefnt er að því að framkvæmdir við styttingu Hörgaeyrargarðs hefjist í lok september. Framkvæmdin er ekki háð umhverfismati en enn er beðið eftir losunarleyfi frá Umhverfis- og orkustofnun.

Þetta kom fram í yfirferð hafnarstjóra á fundi framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyja nú í vikunni.

Undirbúningur framkvæmdarinnar hefur staðið yfir undanfarna mánuði. Í mars var sótt um leyfi til að losa efni í hafið innan hafnarsvæðis Vestmannaeyjahafnar og í kjölfarið hófst athugun á því hvort framkvæmdin væri háð umhverfismati.

Málið fór inn í skipulagsgátt í júlí þar sem kallað var eftir umsögnum. Hinn 18. ágúst barst staðfesting frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um að framkvæmdin væri ekki matsskyld.

Nú er beðið eftir losunarleyfi Umhverfis- og orkustofnunar. Verkið verður boðið út þegar öll tilskilin leyfi liggja fyrir. Með styttingu garðsins og tilheyrandi dýpkun er ætlunin að auka afkastagetu hafnarinnar og öryggi sjófarenda.

Framkvæmda- og hafnarráð leggur mikla áherslu á að undirbúningi verði hraðað svo framkvæmdir geti hafist sem fyrst. Hafnarstjóra hefur verið falið að fara í verðkönnun þegar leyfin liggja fyrir.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Það á að hrósa því sem vel er gert
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.