94 bjargdúfur felldar – aðgerðum ekki lokið
Myndir sem Eyjafréttum bárust sýna særða dúfu og dauða fugla á vettvangi. Vestmannaeyjabær segir mistök hafa orðið við frágang eftir eina aðgerð. Myndir: Aðsendar.

Vestmannaeyjabær hefur látið fella 94 bjargdúfur það sem af er aðgerðum bæjarins. Aðgerðunum er ekki lokið og enginn ákveðinn hámarksfjöldi fugla er tilgreindur í leyfi ráðuneytisins. Bærinn segir lögreglu tilkynnt um hverja aðgerð og að aðkomu að veiðisvæðinu sé lokað meðan á henni stendur.

Þetta kemur fram í svörum Vestmannaeyjabæjar við fyrirspurn Vísis sem birt voru í gærkvöldi. Svörin varpa frekara ljósi á framkvæmd aðgerðanna, sem hafa verið gagnrýndar vegna frágangs, særðra fugla og öryggis almennings.

Í tilkynningu Vestmannaeyjabæjar 15. september kom fram að ráðist hefði verið í aðgerðirnar eftir kvartanir vegna fjölgunar bjargdúfa, sem hefðu valdið óþægindum, óhreinindum og skemmdum á mannvirkjum. Vægari úrræði, meðal annars fuglafælur í formi svífandi fálka, hefðu ekki skilað tilætluðum árangri.

Í svörum bæjarins til Vísis kemur nú fram að kvartanir hafi byrjað að berast í upphafi árs 2025. Bærinn lýsir fækkuninni sem einskiptisaðgerð en segir henni ekki lokið. Staðan sé metin að lokinni hverri aðgerð áður en ákvörðun er tekin um framhaldið.

Lögreglu tilkynnt og göngustígum lokað

Vestmannaeyjabær segir að lögreglunni í Vestmannaeyjum hafi verið tilkynnt um aðgerðirnar áður en þær hófust hverju sinni. Á meðan aðgerðir standi yfir loki verkefnastjóri bæjarins aðkomu að veiðisvæðinu og öllum göngustígum. Markmiðið sé að koma í veg fyrir að gangandi vegfarendur komist inn á eða í námunda við svæðið.

Að aðgerðum loknum fari verkefnastjóri og skotmenn yfir svæðið og fjarlægi dauða fugla og skothylki. Þá sé einnig fylgst með svæðinu eftir aðgerðir til að tryggja að þar séu ekki særðir fuglar.

Bærinn viðurkennir að mistök hafi orðið við frágang eftir eina aðgerð. Í kjölfarið hafi verið farið yfir verklag með þeim sem sinna verkefninu, með það að markmiði að mistökin endurtaki sig ekki og reglum um meðhöndlun dýrahræja verði fylgt.

Hafnar því að aðrar fuglategundir hafi verið skotnar

Dýraverndarsamband Íslands hefur lýst áhyggjum af framkvæmd aðgerðanna og sent umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og Náttúruverndarstofnun erindi vegna málsins.

Sambandið vísar meðal annars til umfjöllunar um að særðar bjargdúfur og fuglahræ hafi fundist á víðavangi, auk hræja annarra fuglategunda, þar á meðal lundapysja og fýlsunga. Dýraverndarsambandið vill að framkvæmdin verði tekin til sérstakrar skoðunar og að aðgerðirnar verði stöðvaðar þar til niðurstaða liggur fyrir.

Vestmannaeyjabær hafnar því alfarið að pysjur eða fýlsungar hafi verið skotnir við aðgerðirnar. Að sögn bæjarins beinast þær eingöngu að bjargdúfum og sé skotið á svæðum þar sem aðrir fuglar séu ekki til staðar.

Spurningum enn ósvarað

Guðmundur Pálsson fjallaði um málið í aðsendri grein á Eyjafréttum í vikunni og beindi þar nokkrum spurningum til Vestmannaeyjabæjar. Hann óskaði meðal annars upplýsinga um meðferð særðra fugla, frágang fuglahræja, samráð við lögreglu, öryggi almennings og hvers vegna aðgerðirnar hefðu verið framkvæmdar um hádegisbil.

Svör bæjarins skýra að hluta hvernig staðið hafi verið að lokunum, tilkynningum til lögreglu og frágangi. Þar kemur þó ekki fram hvers vegna ákveðið var að framkvæma aðgerðirnar á þessum tíma dags eða hvernig farið hafi verið með særða fugla sem kunna að hafa fundist.

Þá liggur ekki fyrir hversu margar aðgerðir hafa farið fram, hversu mörgum bjargdúfum bærinn hyggst samtals fækka eða hvenær aðgerðunum lýkur.

Nýjustu fréttir

94 bjargdúfur felldar – aðgerðum ekki lokið
Nýjungar og verðlaun á sjávarútvegssýningunni – myndir frá IceFish
Toppliðið heimsækir Hásteinsvöll
Elís Þór framlengir við ÍBV til 2028
Tveir tapaðir mánuðir í upphafi sumars
Átta vilja verða tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúi
Ekki hægt að bóka tíma hjá augnlækni í Eyjum
Læsti 130 milljóna Lottómiða inni í skáp
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.