Bærinn grípur til aðgerða til að fækka bjargdúfum
Bjargdúfur í Herjólfsdal í dag. Vestmannaeyjabær hefur gripið til aðgerða til að fækka dúfum eftir kvartanir vegna óþæginda og tjóns af þeirra völdum. Eyjafréttir/TMS.

Vestmannaeyjabær hefur þrisvar gripið til aðgerða til að fækka bjargdúfum eftir að ráðuneyti veitti undanþágu til þess. Bænum hafa borist kvartanir vegna fjölgunar dúfna sem hafa valdið íbúum og fyrirtækjum óþægindum, auk óhreininda og skemmda á mannvirkjum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar.

Dúfurnar hafa einkum haldið til í Herjólfsdal og á svæði á nýja hrauninu. Í tilkynningunni greinir bærinn einnig frá mistökum við frágang eftir aðgerðirnar, þegar dúfuhræjum og notuðum skothylkjum var hent í almenna ruslatunnu.

Fuglafælur skiluðu ekki tilætluðum árangri

Áður en gripið var til veiða voru vægari úrræði reynd. Samkvæmt ráðleggingum Náttúrufræðistofnunar voru settar upp fuglafælur í formi svífandi fálka á umræddum svæðum. Að sögn bæjarins fluttu dúfurnar sig aðeins stuttan spöl og sneru fljótt aftur.

Sumarið 2025 leitaði bærinn því til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins eftir heimild til beinna aðgerða. Málið var til meðferðar hjá stjórnvöldum í um það bil ár og leitað var álits fagstofnana. Ráðuneytið veitti síðan undanþágu frá lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og spendýrum til að koma í veg fyrir tjón af völdum bjargdúfna í sveitarfélaginu.

Skilyrði um framkvæmd veiðanna

Fram kemur að Náttúruverndarstofnun hafi veitt bænum strangar leiðbeiningar um framkvæmd aðgerðanna. Meðal annars sé ekki hleypt af skoti nær fuglabjörgum en 200 metra á landi og beðið hafi verið með aðgerðir þar til ungar voru farnir úr björgum og hreiðrum.

Samráð var haft við lögreglu um veiðar innan þéttbýlis og þeir sem sinntu þeim þurftu að hafa gilt veiðikort og skotvopnaleyfi. Þá ber að safna hræjum saman og ganga frá þeim í samræmi við lög um dýrasjúkdóma.

Farið yfir verkferla eftir mistök

Nýverið bárust bænum ábendingar og myndir frá íbúa sem sýndu að dúfuhræjum og notuðum skothylkjum hafði verið hent í almenna ruslatunnu. Bærinn segir um mistök við frágang að ræða.

Í kjölfarið hafi verið farið yfir verkferla með þeim sem sinna aðgerðunum til að tryggja að þetta endurtaki sig ekki og að reglum um meðhöndlun dýrahræja sé ávallt fylgt.

Í tilkynningunni kemur fram að þrisvar hafi verið gripið til aðgerða, ávallt innan ramma heimildarinnar og með tilkynningu til lögreglu. Bærinn leggur áherslu á að um einskiptisaðgerð sé að ræða til að bregðast við tilteknu vandamáli og tjóni, en ekki varanlegt veiðileyfi til margra ára.

Nýjustu fréttir

Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Framkvæmdir og ferjusigling – myndband
Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Stytting Hörgaeyrargarðs færist nær
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.