Bærinn grípur til aðgerða til að fækka bjargdúfum

Vestmannaeyjabær hefur þrisvar gripið til aðgerða til að fækka bjargdúfum eftir að ráðuneyti veitti undanþágu til þess. Bænum hafa borist kvartanir vegna fjölgunar dúfna sem hafa valdið íbúum og fyrirtækjum óþægindum, auk óhreininda og skemmda á mannvirkjum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar. Dúfurnar hafa einkum haldið til í Herjólfsdal og á svæði […]

Í mörg horn að líta um borð í Kap VE

Áhöfnin á Kap VE hafði í mörg horn að líta þegar Halldór B. Halldórsson leit þar við í gær, enda stóð undirbúningur fyrir næstu veiðiferð yfir. Halldór fór um borð og tók Kristgeir Arnar Ólafsson skipstjóra tali. Viðtalið birtist á vef Vinnslustöðvarinnar og má sjá í myndbandinu hér að neðan. (meira…)

Mikill munur á æfingagjöldum barna

Æfingagjöld barna í knattspyrnu eru mjög mismunandi eftir félögum og hækka almennt eftir því sem börnin eldast. Samkvæmt nýrri samantekt ASÍ munar allt að 17.250 krónum á reiknuðu mánaðargjaldi fyrir 14–15 ára börn hjá þeim félögum sem samanburðurinn nær til. Hjá ÍBV eru bæði handbolti og fótbolti innifalin í æfingagjaldinu. ASÍ tók saman birt æfingagjöld […]

Ný byrjun hjá Vinum í bata

Næstkomandi mánudag, 21. september, hefst ný byrjun hjá Vinum í bata. Vinir í bata er hópur fólks sem tileinka sér Tólf sporin sem lífsstíl. Fyrsti kynningarfundurinn fer fram klukkan 18.30 í Betri stofu Safnaðarheimilis Landakirkju. Alls verða haldnir þrír opnir kynningarfundir, 21. og 28. september og 5. október. Fundirnir eru öllum opnir en eftir það […]

Herjólfur breytir áætlun á morgun

Herjólfur siglir til Landeyjahafnar að morgni miðvikudagsins 16. september, en breytingar verða á áætlun skipsins. Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 07:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 10:45, samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi. Ferðirnar klukkan 08:15 frá Landeyjahöfn og klukkan 09:30 frá Vestmannaeyjum falla niður. Haft verður samband við farþega sem eiga bókað í þær ferðir til að […]

Meira unnið í salt en á öllu síðasta ári

Meira en 7.000 tonn af hráefni hafa verið unnin til söltunar hjá Vinnslustöðinni það sem af er ári. Það er meira en var unnið á öllu síðasta ári. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu fyrirtækisins. Áfanganum var fagnað með tertu með morgunkaffinu síðastliðinn föstudag. Langstærstur hluti hráefnisins er þorskur en einnig hefur verið unnið […]

Breyttar innheimtureglur leikskóla samþykktar

Bæjarstjórn Vestmannaeyja staðfesti á síðasta fundi sínum breytingar á innheimtureglum og gjaldskrá leikskóla. Breytingarnar voru samþykktar með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa. Málið kom til bæjarstjórnar frá fræðsluráði en við afgreiðslu þess lagði Miðflokkurinn fram bókun þar sem kallað var eftir því að fyrirhuguð könnun meðal foreldra leikskólabarna yrði víðtækari en einungis könnun á fyrirkomulagi vetrarleyfa. […]

Nýtt og betra ON app komið í loftið

Nú er nýtt og endurbætt ON app komið í loftið. Með nýja appinu stígur Orka náttúrunnar næsta skref í því að þróa hleðsluþjónustu sína og gera hleðsluupplifun viðskiptavina enn betri. „Með nýja appinu erum við að leggja grunn að enn betri þjónustu fyrir viðskiptavini okkar. Við hlökkum til að kynna aukna möguleika appsins í nýju […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.