Bæjarstjórn Vestmannaeyja staðfesti á síðasta fundi sínum breytingar á innheimtureglum og gjaldskrá leikskóla. Breytingarnar voru samþykktar með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
Málið kom til bæjarstjórnar frá fræðsluráði en við afgreiðslu þess lagði Miðflokkurinn fram bókun þar sem kallað var eftir því að fyrirhuguð könnun meðal foreldra leikskólabarna yrði víðtækari en einungis könnun á fyrirkomulagi vetrarleyfa.
Í bókun Miðflokksins segir að könnunin ætti jafnframt að ná til upplifunar foreldra af gjaldskrá, vistunartíma, greiðslufyrirkomulagi og kostnaði vegna leikskóladvalar. Mikilvægt sé að niðurstöðurnar nýtist við áframhaldandi endurskoðun leikskólamála í Vestmannaeyjum, með þarfir fjölskyldna að leiðarljósi.
Bókunina undirrituðu bæjarfulltrúarnir Jóhann Ingi Óskarsson og Jón Þór Guðjónsson.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu einnig fram bókun. Þar var tekið fram að allir pólitískir fulltrúar í stýrihópi um breytingar á leikskólagjöldum, þar á meðal fulltrúi Miðflokksins, hefðu verið sammála um að víðtækari könnun meðal foreldra yrði framkvæmd þegar reynslutíma breytinganna lyki næsta vor.
Undir bókunina rituðu Hildur Sólveig Sigurðardóttir, Eyþór Harðarson, Aníta Jóhannsdóttir, Óskar Jósúason og Trausti Hjaltason.
Breytingar á innheimtureglum og gjaldskrá leikskóla voru að lokum samþykktar samhljóða af öllum níu bæjarfulltrúum.
Þessu tengt:
Fræðsluráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að systkinaafsláttur í leikskólum taki framvegis einnig til gjalds vegna skráningardaga. Markmiðið er að koma til móts við fjölskyldur með fleiri en eitt barn í leikskóla og stuðla að auknu jafnræði í gjaldtöku. Starfshópur um gjaldskrá leikskóla fundaði 2. september og fór yfir reynsluna af breytingum sem tóku gildi um síðustu […]