Ný byrjun hjá Vinum í bata

Næstkomandi mánudag, 21. september, hefst ný byrjun hjá Vinum í bata. Vinir í bata er hópur fólks sem tileinka sér Tólf sporin sem lífsstíl. Fyrsti kynningarfundurinn fer fram klukkan 18.30 í Betri stofu Safnaðarheimilis Landakirkju.

Alls verða haldnir þrír opnir kynningarfundir, 21. og 28. september og 5. október. Fundirnir eru öllum opnir en eftir það hefst hin eiginlega sporavinna og hópunum verður lokað á fjórða fundi.

Starfið hentar öllum sem vilja vinna með tilfinningar sínar af einlægni og öðlast betri tengsl við sjálfa sig, aðra og æðri mátt. Nafnleynd, trúnaður og traust eru höfð að leiðarljósi.

Við vinnuna er stuðst við vinnubókina Tólf sporin – Andlegt ferðalag, sem fæst í bókabúðinni.

Nánari upplýsingar um starf Vina í bata má finna á viniribata.is.

Allir eru hjartanlega velkomnir á kynningarfundina.

Nýjustu fréttir

Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.