Meira unnið í salt en á öllu síðasta ári
Starfsfólk Vinnslustöðvarinnar fagnaði með tertum með morgunkaffinu þegar vinnsla hráefnis til söltunar fór yfir 7.000 tonn á árinu. Ljósmynd/Vinnslustöðin.

Meira en 7.000 tonn af hráefni hafa verið unnin til söltunar hjá Vinnslustöðinni það sem af er ári. Það er meira en var unnið á öllu síðasta ári. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu fyrirtækisins.

Áfanganum var fagnað með tertu með morgunkaffinu síðastliðinn föstudag. Langstærstur hluti hráefnisins er þorskur en einnig hefur verið unnið töluvert af ufsa.

Samkvæmt færslunni á styttra sumarstopp í vinnslunni sinn þátt í auknu magni. Þá hafa fjárfestingar Vinnslustöðvarinnar í Portúgal skapað fjölbreyttari framleiðslu- og sölumöguleika í saltfiski. Nú er meðal annars unnið að undirbúningi fyrir mikilvæga jólasölu þar í landi.

Síldarvertíðin er einnig hafin, en fyrsta síldarlöndunin var úr Gullbergi VE í lok síðustu viku. Vinnslustöðin boðar nánari umfjöllun um vertíðina síðar.

Nýjustu fréttir

Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.