Nýtt og betra ON app komið í loftið
Nýtt og endurbætt ON app er nú komið í loftið. Ljósmynd/aðsend.

Nú er nýtt og endurbætt ON app komið í loftið. Með nýja appinu stígur Orka náttúrunnar næsta skref í því að þróa hleðsluþjónustu sína og gera hleðsluupplifun viðskiptavina enn betri.

„Með nýja appinu erum við að leggja grunn að enn betri þjónustu fyrir viðskiptavini okkar. Við hlökkum til að kynna aukna möguleika appsins í nýju viðmóti. Þar sem um stóra uppfærslu er að ræða færast greiðslukortaupplýsingar ekki á milli, öryggisins vegna. Því hvetjum við öll til að sækja eða uppfæra appið og setja inn greiðslukortaupplýsingar. Sem dæmi um nýja virkni í appinu er nú hægt að nota bæði Apple Pay og Google Pay til að greiða fyrir hleðslu,“ segir Úlfar Linnet, forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna hjá ON.

Til þess að geta haldið áfram að hlaða áhyggjulaust hjá ON eftir að nýtt app er komið í loftið þurfa allir hleðsluviðskiptavinir að gera tvennt:

  • skrá sig inn í ON appið
  • setja inn greiðslukortaupplýsingar

 

Þetta á einnig við þau sem nota ON lykilinn. Til að halda áfram að nota ON lykilinn þarf að vera með greiðslukort skráð í ON appinu.  Nánari upplýsingar og leiðbeiningar má finna hér.

Nýjustu fréttir

Nýtt og betra ON app komið í loftið
Kjötsúpukvöld Karlakórsins á föstudag
Ný bók frá Ásmundi Friðrikssyni 
Eyjafréttir og Fretta.is í samstarf
Pysjurnar bæði fleiri og þyngri í ár
Radarhýsi rís á Stórhöfða
Styrkur Eyjafrétta liggur líka hjá lesendum
Vertu velkomið haust
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.