Herjólfur breytir áætlun á morgun
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Herjólfur siglir til Landeyjahafnar að morgni miðvikudagsins 16. september, en breytingar verða á áætlun skipsins. Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 07:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 10:45, samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi.

Ferðirnar klukkan 08:15 frá Landeyjahöfn og klukkan 09:30 frá Vestmannaeyjum falla niður. Haft verður samband við farþega sem eiga bókað í þær ferðir til að færa bókanir þeirra. Tilkynning um siglingar það sem eftir lifir dags verður gefin út fljótlega eftir klukkan 11:00 á miðvikudag.

Þá bendir Herjólfur farþegum sem hyggjast ferðast fimmtudaginn 17. september á að ölduspá fyrri hluta dags sé óhagstæð fyrir siglingar til og frá Landeyjahöfn. Verði þörf á breytingum á áætlun verða þær kynntar um leið og þær liggja fyrir.

Belgíska dýpkunarfyrirtækið Jan De Nul tók í dag, 15. september, við dýpkun í og við Landeyjahöfn. Dæluskipið Sebastiano Caboto er nú komið út fyrir höfnina og mun sinna reglubundinni viðhaldsdýpkun samkvæmt samningi við Vegagerðina.

Eins og Eyjafréttir hafa áður greint frá nær samningurinn til áranna 2026–2029. Markmiðið er að tryggja nægjanlegt dýpi og öruggar siglingaaðstæður til og frá höfninni.

Nýjustu fréttir

Herjólfur breytir áætlun á morgun
Meira unnið í salt en á öllu síðasta ári
Breyttar innheimtureglur leikskóla samþykktar
Nýtt og betra ON app komið í loftið
Kjötsúpukvöld Karlakórsins á föstudag
Ný bók frá Ásmundi Friðrikssyni 
Eyjafréttir og Fretta.is í samstarf
Pysjurnar bæði fleiri og þyngri í ár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.