Mig langar að koma á framfæri athugasemdum og spurningum vegna aðgerða gegn bjargdúfum í Vestmannaeyjum og þeirrar umfjöllunar sem birst hefur um málið.
Mikilvægt er að staðreyndir málsins séu settar fram með skýrum og nákvæmum hætti og að rétt mynd sé gefin af því sem átti sér stað.
Í tilkynningu Vestmannaeyjabæjar kemur fram að dúfuhræ og skothylki hafi verið sett í ruslatunnu og því lýst sem „mistökum við frágang“. Sú framsetning getur gefið þá mynd að vandamálið hafi fyrst og fremst falist í því að fuglahræ hafi fundist í ruslatunnu.
Það samræmist þó ekki fyllilega því sem sjá má á meðfylgjandi myndum. Þar virðast fuglahræ liggja víðar um svæðið og einnig virðast einhverjir fuglanna hafa verið særðir. Erfitt var að ná skýrum myndum af þeim en á einni myndinni má meðal annars sjá blóð á baki dúfu.
Því tel ég eðlilegt að kallað sé eftir skýrari upplýsingum um framkvæmd aðgerðanna og frágang að þeim loknum, sérstaklega í ljósi þess að Vestmannaeyjabær segir að hræjum eigi að safna saman og ganga frá þeim samkvæmt reglum.
Einnig vekur athygli að skotið var á fuglana um hádegisbil á svæði þar sem fólk og ferðamenn voru á ferli. Í tilkynningu bæjarins kemur fram að haft hafi verið samráð við lögreglu vegna veiða innan þéttbýlis. Ég varð ekki var við lögreglu á vettvangi og tel því eðlilegt að upplýst verði hvernig samráðið fór fram og með hvaða hætti öryggi almennings var tryggt meðan á aðgerðunum stóð.
Athygli vekur einnig hversu ólík fjölmiðlaumfjöllunin um málið var. Á mbl.is birtist frétt undir fyrirsögninni „Aðgerðir gegn bjargdúfum: Fundust í ruslatunnu“ og þar voru meðal annars birtar myndir af dauðum fuglum. Á Eyjafréttum birtist frétt undir fyrirsögninni „Bærinn grípur til aðgerða til að fækka bjargdúfum“ en þar voru engar myndir birtar af dauðum fuglum.
Þessi ólíka framsetning kann að hafa gefið lesendum mismunandi mynd af umfangi og eðli málsins.
Ég óska því eftir að Vestmannaeyjabær svari eftirfarandi spurningum:
Málið snýst ekki um hvort nauðsynlegt sé að halda fjölda bjargdúfa í skefjum. Það snýst um framkvæmd aðgerðarinnar, meðferð dýra, öryggi almennings og hvort farið hafi verið eftir þeim reglum og verklagi sem Vestmannaeyjabær segir gilda.
Með greininni fylgja nokkrar myndir en fleiri eru til og hægt er að senda þær ef þess er óskað.
Guðmundur Pálsson (Muggur).
Athugasemd ritstjórnar Eyjafrétta.
Frétt Eyjafrétta var unnin upp úr tilkynningu Vestmannaeyjabæjar. Eyjafréttir höfðu ekki undir höndum þær myndir sem vísað er til í þessari grein þegar fréttin var birt. Vestmannaeyjabæ er velkomið að svara opinberlega þeim spurningum sem höfundur beinir til bæjarins og munu Eyjafréttir birta svörin berist þau.

