Töluverður vatnsleki á hafnarsvæðinu

vestmanaeyjahofn_24_hbh_fb

Töluverður vatnsleki hefur komið upp á hafnarsvæðinu í Vestmannaeyjum. Starfsmenn Vestmannaeyjahafnar hafa lokað fyrir lögnina sem um ræðir og vinna að því að staðsetja lekann. Þetta kemur fram í svari Sigrúnar Ingu Ævarsdóttur, samskipta- og markaðsstjóra HS Veitna, við fyrirspurn Eyjafrétta. Samkvæmt rennslismælum varð töluverður leki á hafnarsvæðinu, en lögnin er í umsjón Vestmannaeyjahafnar. Sigrún […]

Spurningar vegna aðgerða gegn bjargdúfum

Mig langar að koma á framfæri athugasemdum og spurningum vegna aðgerða gegn bjargdúfum í Vestmannaeyjum og þeirrar umfjöllunar sem birst hefur um málið. Mikilvægt er að staðreyndir málsins séu settar fram með skýrum og nákvæmum hætti og að rétt mynd sé gefin af því sem átti sér stað. Í tilkynningu Vestmannaeyjabæjar kemur fram að dúfuhræ […]

Gullverðlaun fyrir gin sem veðraðist í hlíðum Eldfells

Tvær tegundir af íslenska Mosa Gin, sem fengu að þroskast og veðrast í tunnum í hlíðum Eldfells í Vestmannaeyjum, hafa hlotið gullverðlaun í alþjóðlegri áfengiskeppni.  Um er að ræða Mosa Chardonnay Eldfell og Mosa Islay Eldfell sem hlutu gullverðlaun í The World Spirits Competition, keppni á vegum The Tasting Alliance. Greint er frá verðlaununum á […]

18 þúsund rúmmetrar fjarlægðir fyrstu dagana

Sanddæluskipið Sebastiano Caboto fjarlægði um 18 þúsund rúmmetra af efni úr Landeyjahöfn á fyrstu dögum dýpkunar. Unnið var í samtals um 32 klukkustundir dagana 18. til 20. september. Nýr samningur Vegagerðarinnar við belgíska fyrirtækið Jan De Nul tók gildi 15. september. Dýpkun hófst 18. september og var unnið fram á kvöld 19. september, í um […]

Herjólfur stefnir á eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis – uppfært

Herjólfur stefnir á að sigla eina ferð til Landeyjahafnar síðari hluta dags í dag. Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 16:00, í stað klukkan 17:00, og frá Landeyjahöfn klukkan 20:00, í stað klukkan 20:45. Þetta kemur fram í tilkynnignu frá Herjólfi ohf. Ferðir klukkan 18:15, 19:30, 22:00 og 23:15 falla niður. Fulltrúar Herjólfs hafa samband við […]

Laxey sækir um leyfi fyrir 9.300 fermetra seiðaeldisstöð

default

Laxey ehf. hefur sótt um byggingarleyfi fyrir rúmlega 9.300 fermetra seiðaeldisstöð við Viðlagafjöru. Umsóknin var tekin fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa föstudaginn 18. september. Samkvæmt umsókninni verður seiðaeldisstöðin alls 9.303,8 fermetrar að brúttóflatarmáli. Í byggingunni verða meðal annars eldisker, tæknirými, skrifstofur, búnings- og starfsmannaaðstaða, eldhús og önnur þjónusturými sem tengjast starfseminni. Til samanburðar er núverandi húsnæði […]

Myndband: Gróðurvinin Gaujulundur

default

Halldór B. Halldórsson tekur okkur að þessu sinni með í Gaujulund, fallegan sælureit í Nýja hrauninu. Í nýju myndbandi hans má sjá lundinn og umhverfi hans frá ýmsum sjónarhornum. Saga Gaujulundar nær aftur til ársins 1988 þegar hjónin Erlendur Stefánsson og Guðfinna Ólafsdóttir, Elli og Gauja, hófu þar uppgræðslu og ræktun. Þá var enginn jarðvegur […]

Anna Rós og Einar á nýju skólaári hjá Grv

Nýtt skólaár er hafið hjá Grunnskóla Vestmannaeyja og ýmislegt á döfinni. Þar ber hæst nýtt fyrirkomulag einkunnagjafar sem felur í sér breytingar fyrir bæði nemendur og kennara. Verkefnið Kveikjum neistann er komið á sjötta skólaárið og hefur sett mark sitt á skólastarfið með áherslu á læsi, hreyfingu, áhuga og styrkleika nemenda. Verkefnið hefur þróast frá […]

FIFA Arena gæti kostað bæinn allt að 24 milljónir

Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja hefur hafnað erindi ÍBV um stuðning bæjarins við umsókn félagsins um FIFA Arena við Hásteinsvöll og Týsheimili. Áætlað er að kostnaður bæjarins vegna jarðvinnu og undirbúnings gæti numið 15–24 milljónum króna. ÍBV óskaði meðal annars eftir því að Vestmannaeyjabær staðfesti stuðning sinn við verkefnið og fyrirhugaða staðsetningu þess, tæki þátt í […]

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fyrri hluta dags

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fyrri hluta dags í dag þar sem ófært er til Landeyjahafnar vegna veðurs og sjólags. Brottför frá Vestmannaeyjum er klukkan 07:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 10:45. Ferðir klukkan 08:15, 09:30, 12:00, 13:15, 14:30 og 15:45 falla niður. Fulltrúar Herjólfs hafa samband við farþega sem áttu bókað í ferðirnar til að færa […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.