Myndband: Gróðurvinin Gaujulundur
default
Litadýrðin í Gaujulundi myndar fallegt mótvægi við dökkt hraunið. Mynd: Halldór B. Halldórsson.

Halldór B. Halldórsson tekur okkur að þessu sinni með í Gaujulund, fallegan sælureit í Nýja hrauninu. Í nýju myndbandi hans má sjá lundinn og umhverfi hans frá ýmsum sjónarhornum.

Saga Gaujulundar nær aftur til ársins 1988 þegar hjónin Erlendur Stefánsson og Guðfinna Ólafsdóttir, Elli og Gauja, hófu þar uppgræðslu og ræktun. Þá var enginn jarðvegur á svæðinu, heldur svart og gróðursnautt hraun og vikur. Með mikilli eljusemi breyttu þau dalverpinu í gróðursælan lund sem síðar fékk nafn Gauju.

Síðustu ár hafði lundinum lítið verið sinnt en vorið 2025 tók Renate Heisek til hendinni eftir að hafa séð þar tækifæri til að nýta græna fingur sína. Eyjafréttir fjölluðu um framtak hennar síðasta sumar.

Myndband Halldórs má sjá hér að neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Öryggi og framtíðarsýn í forgrunni
Bærinn leggur fram 432 milljónir vegna vatnslagnarinnar
Herjólfur fækkar ferðum í dag
Erlingur með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum með Minden
Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld
Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.