18 þúsund rúmmetrar fjarlægðir fyrstu dagana
Dýpið í innsiglingunni um sjö metrar :: Dýpkun hefst að nýju um næstu helgi
Sanddæluskipið Sebastiano Caboto að leggja af stað úr Vestmannaeyjahöfn í gær. Skipið fjarlægði um 18 þúsund rúmmetra af efni úr Landeyjahöfn á fyrstu dögum dýpkunar. Eyjafréttir/TMS.
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Sanddæluskipið Sebastiano Caboto fjarlægði um 18 þúsund rúmmetra af efni úr Landeyjahöfn á fyrstu dögum dýpkunar. Unnið var í samtals um 32 klukkustundir dagana 18. til 20. september.

Nýr samningur Vegagerðarinnar við belgíska fyrirtækið Jan De Nul tók gildi 15. september. Dýpkun hófst 18. september og var unnið fram á kvöld 19. september, í um 24 klukkustundir. Vinna hófst aftur 20. september og stóð þá yfir í átta klukkustundir.

Af þeim 18 þúsund rúmmetrum sem hafa verið fjarlægðir komu um 12 þúsund rúmmetrar af svæði 7, svonefndu buffer-svæði við hafnargarðana. Um sex þúsund rúmmetrar voru fjarlægðir af svæðum 4 og 5 við hafnarmynnið.

Enn að venjast krefjandi aðstæðum

G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskipta hjá Vegagerðinni, segir í samtali við Eyjafréttir að skipið og búnaður þess hafi reynst ágætlega til þessa. Enn sé þó of snemmt að leggja endanlegt mat á árangurinn þar sem áhöfnin og skipið séu enn að laga sig að aðstæðum í Landeyjahöfn.

Skipið hefur ekki nýtt alla þá veðurglugga sem hafa gefist fyrstu dagana. G. Pétur segir viðbúið að það taki tíma fyrir áhöfnina að venjast þeim krefjandi aðstæðum sem eru við höfnina.

Veður og sjólag hafa áhrif á framkvæmdirnar. Gert er ráð fyrir að skipið geti aðeins dýpkað þegar aðstæður eru góðar og ölduhæð um 1,5 metrar eða minni.

Dýpkun hefst aftur um helgina

Dýpið í innsiglingunni er nú um sjö metrar. Spáð er óhagstæðu veðri og sjólagi næstu daga og telur Vegagerðin viðbúið að dýpið geti minnkað.

Reiknað er með að dýpkun geti hafist af fullum krafti á ný á laugardag eða sunnudag. Næstu skref eru óbreytt. Stefnt er að því að nýta þá veðurglugga sem gefast til að halda nægu dýpi fyrir siglingar Herjólfs.

Ölduspáin sem Vegagerðin sendi Eyjafréttum sýnir óhagstæð skilyrði til dýpkunar næstu daga. Reiknað er með að aðstæður fari batnandi um helgina. Mynd/Vegagerðin.

Nýjustu fréttir

18 þúsund rúmmetrar fjarlægðir fyrstu dagana
Herjólfur stefnir á eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
Laxey sækir um leyfi fyrir 9.300 fermetra seiðaeldisstöð
Myndband: Gróðurvinin Gaujulundur
Anna Rós og Einar á nýju skólaári hjá Grv
FIFA Arena gæti kostað bæinn allt að 24 milljónir
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fyrri hluta dags
Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðurlandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.