Laxey sækir um leyfi fyrir 9.300 fermetra seiðaeldisstöð
default
Athafnasvæði Laxeyjar í Viðlagafjöru breytist dag frá degi. Mynd/Halldór B. Halldórsson

Laxey ehf. hefur sótt um byggingarleyfi fyrir rúmlega 9.300 fermetra seiðaeldisstöð við Viðlagafjöru. Umsóknin var tekin fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa föstudaginn 18. september.

Samkvæmt umsókninni verður seiðaeldisstöðin alls 9.303,8 fermetrar að brúttóflatarmáli. Í byggingunni verða meðal annars eldisker, tæknirými, skrifstofur, búnings- og starfsmannaaðstaða, eldhús og önnur þjónusturými sem tengjast starfseminni.

Til samanburðar er núverandi húsnæði Laxeyjar að Strandvegi 104, í botni Friðarhafnar, um 13.000 fermetrar. Þar er seiðaeldisstöð ásamt skrifstofum fyrirtækisins á annarri og þriðju hæð. Fyrirhuguð 9.303,8 fermetra bygging við Viðlagafjöru 3 verður því um 72% af stærð núverandi húsnæðis.

Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til umhverfis- og skipulagsráðs þar sem fyrirhuguð bygging er 39 sentímetrum yfir leyfilegri hámarkshæð samkvæmt deiliskipulagi. Einnig eru frávik frá skipulaginu sem varða uppbrot í húsveggjum.

Á sama fundi var samþykkt umsókn Laxeyjar um 412 fermetra viðbyggingu við núverandi fóðurgeymslu að Viðlagafjöru 1. Eftir stækkun verður byggingin samtals 1.557,8 fermetrar að brúttóflatarmáli.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.