Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fyrri hluta dags
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fyrri hluta dags í dag þar sem ófært er til Landeyjahafnar vegna veðurs og sjólags. Brottför frá Vestmannaeyjum er klukkan 07:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 10:45.

Ferðir klukkan 08:15, 09:30, 12:00, 13:15, 14:30 og 15:45 falla niður. Fulltrúar Herjólfs hafa samband við farþega sem áttu bókað í ferðirnar til að færa bókanir þeirra.

Tilkynning um siglingar síðari hluta dags verður gefin út fyrir klukkan 15:00. Herjólfur minnir jafnframt á að á þessum árstíma sé alltaf hætta á færslu milli hafna og því sé ekki æskilegt að skilja farartæki eftir í annarri hvorri höfninni, segir í tilkynningu frá skipafélaginu.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.