Töluverður vatnsleki á hafnarsvæðinu
vestmanaeyjahofn_24_hbh_fb
Vestmannaeyjahöfn. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Töluverður vatnsleki hefur komið upp á hafnarsvæðinu í Vestmannaeyjum. Starfsmenn Vestmannaeyjahafnar hafa lokað fyrir lögnina sem um ræðir og vinna að því að staðsetja lekann.

Þetta kemur fram í svari Sigrúnar Ingu Ævarsdóttur, samskipta- og markaðsstjóra HS Veitna, við fyrirspurn Eyjafrétta. Samkvæmt rennslismælum varð töluverður leki á hafnarsvæðinu, en lögnin er í umsjón Vestmannaeyjahafnar.

Sigrún Inga segir lekann ekki hafa áhrif á vatnsbúskap eða þrýsting í vatnsveitunni þar sem lokað hafi verið fyrir viðkomandi lögn. Hún áréttar jafnframt að um sé að ræða bilun hjá einstökum viðskiptavini en ekki í kerfi HS Veitna. Lögnin og viðgerðin eru í umsjón Vestmannaeyjahafnar. HS Veitur fylgjast áfram með stöðu vatnsveitunnar.

Eyjafréttir sendu Dóru Björk Gunnarsdóttur hafnarstjóra fyrirspurn um umfang lekans, staðsetningu hans og viðgerð. Svar hafði ekki borist þegar fréttin var birt. Fréttin verður uppfærð þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.