Herjólfur stefnir á eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis - uppfært
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Herjólfur stefnir á að sigla eina ferð til Landeyjahafnar síðari hluta dags í dag. Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 16:00, í stað klukkan 17:00, og frá Landeyjahöfn klukkan 20:00, í stað klukkan 20:45. Þetta kemur fram í tilkynnignu frá Herjólfi ohf.

Ferðir klukkan 18:15, 19:30, 22:00 og 23:15 falla niður. Fulltrúar Herjólfs hafa samband við farþega sem áttu bókað í ferðirnar til að færa bókanir þeirra.

Herjólfur bendir á að spáð sé hækkandi ölduhæð þegar líður á daginn. Þurfi að breyta áætluninni verður það tilkynnt um leið og ákvörðun liggur fyrir.

Farþegar eru jafnframt minntir á að á þessum árstíma sé hætta á færslu milli hafna og því sé ekki æskilegt að skilja farartæki eftir í annarri hvorri höfninni.

Uppfært:

Þriðjudagur 22.september 2026
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar amk fyrri ferð dagsins.
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00.
Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45
Ferðir kl. 08:15, 09.30, 12:00, 13:15, 14:30, 15:45 falla því miður.

Hvað varðar siglingar fyrir seinnipartinn verður gefin út tilkynning fyrir kl. 15:00.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.