Gullverðlaun fyrir gin sem veðraðist í hlíðum Eldfells
Smakkað á Eldfelli. Kári, Birkir, Hjálmar, Daníel Geir og Arnar Jón.

Tvær tegundir af íslenska Mosa Gin, sem fengu að þroskast og veðrast í tunnum í hlíðum Eldfells í Vestmannaeyjum, hafa hlotið gullverðlaun í alþjóðlegri áfengiskeppni. 

Um er að ræða Mosa Chardonnay Eldfell og Mosa Islay Eldfell sem hlutu gullverðlaun í The World Spirits Competition, keppni á vegum The Tasting Alliance. Greint er frá verðlaununum á mbl.is og þar kemur fram að þetta sé í fyrsta sinn sem Mosi Gin tekur þátt í alþjóðlegri keppni. Keppnin byggist á blindsmökkun þar sem dómendur vita ekki hvaða framleiðendur standa að drykkjunum sem þeir meta. 

Eldfell hluti af framleiðslunni 

Sérstaða Mosa Gin felst meðal annars í því hvernig ginið er látið þroskast. Tunnur með gininu eru settar niður á ólíkum stöðum í íslenskri náttúru og látnar standa þar undir áhrifum veðurs og umhverfis. 

Báðar tegundirnar sem nú hlutu gullverðlaun höfðu verið geymdar í tunnum við Eldfell í Vestmannaeyjum. Fram kemur á mbl.is að framleiðsluaðferðin hafi áður vakið athygli. Arnar Jón Agnarsson, stofnandi Mosa Gin, hefur lýst hugmyndinni þannig að tunnurnar séu fylltar af gini og síðan „skildar eftir í höndum náttúrunnar“. 

„Gríðarlegur heiður“ 

Arnar Jón segir verðlaunin mikilvæga viðurkenningu fyrir fyrirtækið. „Það er gríðarlegur heiður að hljóta þessa viðurkenningu og gefur okkur byr undir báða vængi fyrir næstu verkefni,“ segir Arnar Jón í samtali sem vitnað er til á mbl.is. 

Eldfell og náttúra Vestmannaeyja eiga því sinn þátt í tveimur fyrstu alþjóðlegu gullverðlaunum Mosa Gin.

 


Þessu tengt:

Heimsklassa Gin þar sem vindar og veður ráða för

„Ég er stofnandi Ólafsson Gin sem er vinsælasta Gin á Íslandi en hætti þar öllum daglegum afskiptum árið 2021. Hef þó verið með annan fótinn í áfengisbransanum og velt fyrir mér hvað sniðugt er hægt að gera. Hef ferðast um heiminn og kynnt íslenskt Gin og er alltaf spurður að því hvað sé svona sérstakt […]

Nýjustu fréttir

Spurningar vegna aðgerða gegn bjargdúfum
Gullverðlaun fyrir gin sem veðraðist í hlíðum Eldfells
18 þúsund rúmmetrar fjarlægðir fyrstu dagana
Herjólfur stefnir á eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
Laxey sækir um leyfi fyrir 9.300 fermetra seiðaeldisstöð
Myndband: Gróðurvinin Gaujulundur
Anna Rós og Einar á nýju skólaári hjá Grv
FIFA Arena gæti kostað bæinn allt að 24 milljónir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.