Vatnslekinn rakinn til ónýtrar lagnar við Sprönguna
Horft yfir Vestmannaeyjahöfn af Heimakletti. Gamla vatnslögnin við Sprönguna sér Básaskersbryggju, Bæjarbryggju og Nausthamri fyrir ferskvatni.

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að ráðist verði í endurnýjun á gamalli vatnslögn við Sprönguna. Lögnin er sögð ónýt og úr henni seitlar vatn. Áætlaður kostnaður við framkvæmdina er 4,5 milljónir króna. Málið var tekið fyrir á aukafundi ráðsins í dag, föstudaginn 2. október. Gamla lögnin sér Básaskersbryggju, Bæjarbryggju og Nausthamri fyrir ferskvatni.

Hafnarstjóri lagði til að lögninni yrði skipt út og ný lögn lögð frá Hlíðarvegi 2 að dælustöð HS Veitna í Friðarhöfn. Fyrirhugað er að leggja hana í slóðann undir Skiphellum og útbúa þar jafnframt göngustíg frá Spröngunni að gangstétt norðan við dælustöðina.

Framkvæmda- og hafnarráð samþykkti málið fyrir sitt leyti og vísaði því til bæjarráðs. Framkvæmdin er ekki á fjárhagsáætlun ársins 2026 og þarf því að samþykkja viðauka svo hægt verði að ráðast í hana. Ráðið leggur áherslu á mikilvægi þess að tryggja afhendingaröryggi á vatni til skipa í Vestmannaeyjahöfn. Hafnarstjóra var jafnframt falið að sækja um nauðsynlegt framkvæmdaleyfi, að því gefnu að bæjarráð samþykki viðaukann.

Við framkvæmdirnar á að taka mið af fyrirliggjandi hugmyndum og áætlunum um Spröngusvæðið. Ráðið leggur áherslu á að vandað verði til verka og að frágangur og ásýnd falli vel að umhverfinu og fyrirhugaðri uppbyggingu svæðisins.

Eyjafréttir greindu áður frá því að töluverður vatnsleki hefði komið upp á hafnarsvæðinu. HS Veitur staðfestu þá að lekinn væri í lögn í umsjón Vestmannaeyjahafnar en ekki í dreifikerfi veitunnar.


Þessu tengt:

Töluverður vatnsleki á hafnarsvæðinu

vestmanaeyjahofn_24_hbh_fb

Töluverður vatnsleki hefur komið upp á hafnarsvæðinu í Vestmannaeyjum. Starfsmenn Vestmannaeyjahafnar hafa lokað fyrir lögnina sem um ræðir og vinna að því að staðsetja lekann. Þetta kemur fram í svari Sigrúnar Ingu Ævarsdóttur, samskipta- og markaðsstjóra HS Veitna, við fyrirspurn Eyjafrétta. Samkvæmt rennslismælum varð töluverður leki á hafnarsvæðinu, en lögnin er í umsjón Vestmannaeyjahafnar. Sigrún […]

Nýjustu fréttir

Vatnslekinn rakinn til ónýtrar lagnar við Sprönguna
Eyjablikksmótið fer fram í Vestmannaeyjum um helgina
Síðasti opni fundur Vina í bata á mánudag
ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.