Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis í dag, laugardaginn 3. október, þar sem aðstæður í Landeyjahöfn leyfa ekki siglingar þangað. Fyrri ferð sunnudagsins verður einnig farin um Þorlákshöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Í dag verður brottför frá Vestmannaeyjum klukkan 16:00, í stað 17:00, og frá Þorlákshöfn klukkan 19:45, í stað 20:45. Áætlunarferðir klukkan 18:15, 19:30, 22:00 og 23:15 falla niður. Sunnudaginn 4. október fer Herjólfur frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar klukkan 07:00 og frá Þorlákshöfn til Eyja klukkan 10:45. Ferðir klukkan 08:15, 09:30, 12:00, 13:15, 14:30 og 15:45 falla niður.
Í tilkynningu Herjólfs kemur fram að spáð sé aukinni ölduhæð þegar líður á helgina og að horfur á siglingum um Landeyjahöfn á sunnudag séu óhagstæðar. Ákvörðun um síðdegisferðir sunnudags verður tekin klukkan 15:00 þann dag. Mögulegt er að þá verði einungis siglt frá Eyjum klukkan 07:00 og 16:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 10:45 og 19:45, en það hefur ekki verið staðfest.
Í tilkynningunni er farþegar minntir á að taka með eigin búnað ætli þeir að nýta gistirými ferjunnar. Vegna hættu á að siglingar færist milli hafna er jafnframt ráðlagt að skilja ekki farartæki eftir í Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.