ÍBV með öruggan sigur á HK

Kvennalið ÍBV í handbolta sótti HK heim í 4. umferð Olís deildar kvenna í dag. Eyjakonur fögnuðu fimm marka sigri, 24-29, og hafa þar með unnið þrjá af fjórum leikjum sínum á tímabilinu. ÍBV hafði yfirhöndina frá upphafi og var staðan 1-5 eftir rúmlega tíu mínútna leik. Eyjakonur náðu mest átta marka forskoti, 2-10, í […]
Malbikað á fimm stöðum í næsta veðurglugga

Malbikunarframkvæmdir á vegum Vestmannaeyjabæjar og Vestmannaeyjahafnar eru áætlaðar á fimm stöðum í næsta veðurglugga. Meðal verkefna eru Sólhlíð og bílastæði við listaverkið á nýja hrauninu. Sviðsstjóri fór yfir fyrirhugaðar framkvæmdir á fundi framkvæmda- og hafnarráðs 30. september. Samkvæmt fundargerð er áætlað að malbika á eftirfarandi stöðum: Sólhlíð. Bílastæði við listaverkið á nýja hrauninu. Bílastæði við […]
Herjólfur til Þorlákshafnar síðdegis og í fyrramálið

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis í dag, laugardaginn 3. október, þar sem aðstæður í Landeyjahöfn leyfa ekki siglingar þangað. Fyrri ferð sunnudagsins verður einnig farin um Þorlákshöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Í dag verður brottför frá Vestmannaeyjum klukkan 16:00, í stað 17:00, og frá Þorlákshöfn klukkan 19:45, í stað 20:45. Áætlunarferðir […]
Þéttsetið á tónleikum Júníusar Meyvant í Alþýðuhúsinu

Þéttsetið var í Alþýðuhúsinu í gærkvöldi þegar Eyjamaðurinn Unnar Gísli Sigurmundsson, betur þekktur sem Júníus Meyvant, hélt þar tónleika. Óskar Pétur Friðriksson ljósmyndari var á staðnum og myndaði tónleikana. Júníus hefur skipað sér í hóp vinsælustu tónlistarmanna þjóðarinnar. Tónlist hans einkennist af nánd og hlýju og tónleikarnir í Alþýðuhúsinu gáfu heimafólki tækifæri til að njóta […]
Vilja gefa Blátind með meðgjöf

Minjastofnun vill láta reyna til þrautar hvort bjarga megi Blátindi VE21 með því að auglýsa bátinn að gjöf, með því skilyrði að hann verði gerður upp. Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að fjármunir sem áætlaðir hafa verið til förgunar fylgi bátnum, taki aðili við honum og flytji hann frá Vestmannaeyjum til uppgerðar. Málið var […]
Eyjakonur sækja HK heim í dag

Kvennalið ÍBV mætir HK í fjórðu umferð Olísdeildarinnar í dag, laugardag. Leikurinn fer fram í Kórnum og hefst klukkan 15:00. Eyjakonur hafa farið vel af stað í deildinni og unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum. Liðið lagði KA/Þór að velli, 32:28, í fyrstu umferð og vann síðan Selfoss, 36:34, en tapaði 31:27 fyrir Val […]