Malbikað á fimm stöðum í næsta veðurglugga
Malbikad 20210511 120806
Malbikað í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Malbikunarframkvæmdir á vegum Vestmannaeyjabæjar og Vestmannaeyjahafnar eru áætlaðar á fimm stöðum í næsta veðurglugga. Meðal verkefna eru Sólhlíð og bílastæði við listaverkið á nýja hrauninu.

Sviðsstjóri fór yfir fyrirhugaðar framkvæmdir á fundi framkvæmda- og hafnarráðs 30. september. Samkvæmt fundargerð er áætlað að malbika á eftirfarandi stöðum:

  • Sólhlíð.
  • Bílastæði við listaverkið á nýja hrauninu.
  • Bílastæði við Kirkjugerði.
  • Götu við Gjábakkakant.
  • Strandvegi/FES-brekku.

 

Ekki kemur fram í fundargerðinni hvenær framkvæmdirnar hefjast, en þær eru fyrirhugaðar þegar veður leyfir. Ráðið þakkaði sviðsstjóra fyrir greinargóða yfirferð á málinu.

Nýjustu fréttir

Malbikað á fimm stöðum í næsta veðurglugga
Herjólfur til Þorlákshafnar síðdegis og í fyrramálið
Þéttsetið á tónleikum Júníusar Meyvant í Alþýðuhúsinu
Vilja gefa Blátind með meðgjöf
Eyjakonur sækja HK heim í dag
Rúmlega þriggja metra dýpi í Landeyjahöfn – siglingar háðar sjávarföllum
Nærri 8.500 gestir sóttu IceFish
Vatnslekinn rakinn til ónýtrar lagnar við Sprönguna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.