Þéttsetið á tónleikum Júníusar Meyvant í Alþýðuhúsinu
Júníus Meyvant ásamt Rubin Pollock, gítarleikara Kaleo, á sviðinu í Alþýðuhúsinu. Þéttsetið var á tónleikunum í gærkvöldi.. Eyjafréttir/Óskar Pétur Friðriksson.

Þéttsetið var í Alþýðuhúsinu í gærkvöldi þegar Eyjamaðurinn Unnar Gísli Sigurmundsson, betur þekktur sem Júníus Meyvant, hélt þar tónleika. Óskar Pétur Friðriksson ljósmyndari var á staðnum og myndaði tónleikana.

Júníus hefur skipað sér í hóp vinsælustu tónlistarmanna þjóðarinnar. Tónlist hans einkennist af nánd og hlýju og tónleikarnir í Alþýðuhúsinu gáfu heimafólki tækifæri til að njóta hennar í návígi. Með Unnari á sviðinu var Rubin Pollock, gítarleikari Kaleo, sem hefur notið mikillar velgengni á alþjóðavísu. Rubin er sonur Mike Pollock, sem meðal annars var gítarleikari Utangarðsmanna.

Unnar byrjaði að spila á gítar á þrítugsaldri og fann sig fljótt í tónlistinni. Fyrsta lag hans, Color Decay, kom út árið 2014 og vakti mikla athygli bæði hér heima og erlendis. Það var meðal annars valið lag dagsins hjá útvarpsstöðinni KEXP í Seattle.

Síðan hefur hann sent frá sér þrjár breiðskífur og tvær stuttskífur, auk laga á borð við Signals, Gold Laces og Ain’t Gonna Let You Drown.

Hér að neðan má sjá myndasyrpu Óskars Péturs frá tónleikunum. Hægt er að smella á myndirnar til að opna þær í fullri upplausn.

Nýjustu fréttir

Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.