Kvennalið ÍBV mætir HK í fjórðu umferð Olísdeildarinnar í dag, laugardag. Leikurinn fer fram í Kórnum og hefst klukkan 15:00.
Eyjakonur hafa farið vel af stað í deildinni og unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum. Liðið lagði KA/Þór að velli, 32:28, í fyrstu umferð og vann síðan Selfoss, 36:34, en tapaði 31:27 fyrir Val á útivelli.
ÍBV er í fimmta sæti deildarinnar með fjögur stig og á leik til góða á flest liðin fyrir ofan sig. Með sigri í dag færi liðið upp fyrir Val og í fjórða sætið með sex stig.
HK hefur hins vegar tapað fyrstu þremur leikjum sínum og situr í níunda sæti án stiga. Kópavogsliðið freistar þess því að ná í sín fyrstu stig gegn Eyjakonum. Leikur HK og ÍBV hefst eins og áður segir klukkan 15:00 í Kórnum.