Atvinnu- og mannlífssýningin VestExpo27 verður haldin í Íþróttahöll Vestmannaeyja dagana 1.–2. júlí 2027. Sýningunni er ætlað að kynna fjölbreytt atvinnulíf, þjónustu, framleiðslu, menningu og mannlíf í Eyjum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipuleggjendum sýningarinnar, Exposýn ehf. Þar segir að markmiðið sé að vekja jákvæða athygli á samfélaginu í Vestmannaeyjum, starfseminni sem þar fer fram og þeim tækifærum sem þar eru til staðar.
Sýningin verður opin bæði heimamönnum og gestum Goslokavikunnar. Að sögn skipuleggjenda er henni ætlað að falla að stemningu hátíðarinnar og auka fjölbreytni dagskrárinnar.
Þátttaka er ætluð fjölbreyttum hópi fyrirtækja og stofnana, meðal annars úr þjónustu, iðnaði, matvælaframleiðslu, sjávarútvegi og ferðaþjónustu. Rannsóknaraðilar, frumkvöðlar og sprotafyrirtæki eru einnig meðal þeirra sem sýningin er ætluð.
Þá eru veitufyrirtæki, skólar, opinberir þjónustuaðilar, félagasamtök og íþrótta- og menningarfélög hvött til þátttöku.
Í tilkynningunni segir að áhersla verði lögð á faglega umgjörð. Íþróttahöllinni verði breytt í sýningarsvæði með sýningarbásum, lýsingu, merkingum og öðrum búnaði.
Sýnendur fá tækifæri til að kynna starfsemi sína, vörur og þjónustu í sérstökum básum. Jafnframt verður þeim heimilt að selja vörur og þjónustu beint á sýningunni.
Skráning sýnenda og annarra þátttakenda á að hefjast upp úr miðjum október. Samhliða verður vefur verkefnisins, vestexpo.is, opnaður.
Þar verður hægt að nálgast upplýsingar um opnunartíma, stærðir og útfærslur sýningarbása, verð, skráningu og þjónustu við sýnendur. Exposýn ehf. er framkvæmdaraðili og eigandi VestExpo27.
