
Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., fagnar yfirlýsingu Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um að gert sé ráð fyrir kaupum á tveimur vararafmótorum fyrir Herjólf í fjárlagafrumvarpi ársins 2027. Ráðherra greindi frá því að fjármagni hefði sérstaklega verið forgangsraðað til kaupanna.
„Við fögnum þessum skilaboðum ráðherra. Þegar við leituðum eftir fjármögnun kaupanna höfðum við fengið þær upplýsingar að ekki væri fyrir hendi fjárheimild vegna þeirra. Umsögn okkar til fjárlaganefndar byggði á þeim upplýsingum og tilgangurinn var að tryggja að hægt yrði að ljúka kaupunum. Það er því mjög ánægjulegt að fá þessi viðbrögð og við treystum því að málið gangi eftir í samræmi við orð ráðherra,“ segir Ólafur.
Mótorarnir voru pantaðir að undangengnum samtölum við fulltrúa bæði Vegagerðarinnar og innviðaráðuneytisins. Smíðatíminn er um níu mánuðir og afhending áfram áætluð í byrjun febrúar 2027.
„Það var mikilvægt að koma smíðinni af stað sem fyrst. Reynslan frá því í sumar sýndi okkur hversu viðkvæm staðan er þegar slíkur varabúnaður er ekki til taks. Næsta skref er að ganga frá greiðslufyrirkomulaginu við Vegagerðina og ráðuneytið, þannig að staðið verði við skuldbindingar gagnvart framleiðandanum og ekkert tefji afhendinguna.“
Herjólfur ohf. hefur þegar greitt staðfestingargjald sem nemur 30 prósentum kaupverðsins. Beiðni félagsins um fjármögnun tekur bæði til endurgreiðslu þess gjalds og greiðslu eftirstöðvanna.
„Við miðum við að ríkið fjármagni kaupin í heild og væntum þess að það verði staðfest við frágang málsins. Íslenska ríkið á skipið en Herjólfur ohf. annast reksturinn. Að okkar mati er það eðlilegur þáttur í ábyrgð eigandans að tryggja þennan mikilvæga varabúnað.“
Áætlað kaupverð beggja varamótoranna er um 65 milljónir króna. Til samanburðar nam kostnaður vegna aðkomu Baldurs að siglingum til Vestmannaeyja í sumar rúmlega 200 milljónum króna. Ólafur segir þann samanburð sýna hversu hagkvæm kaupin geti verið fyrir ríkissjóð.
„Þarna erum við að tala um að kaupverð beggja mótoranna sé innan við þriðjungur þess sem aðkoma Baldurs kostaði í sumar. Með varamótora tiltæka hér á landi getum við brugðist við sambærilegri bilun með allt öðrum hætti en áður. Í stað þess að bíða mánuðum saman eftir viðgerð erlendis verður hægt að skipta út biluðum mótor á mun skemmri tíma. Þótt mótorskipti og viðgerð kosti áfram sitt getur kostnaður ríkisins við að halda uppi samgöngum við slíkar aðstæður orðið margfalt lægri.“
Hann bendir á að rafmótorarnir um borð séu ólíkir og því þurfi einn varamótor fyrir hvorn þeirra. Kaupin bæti þannig viðbúnað vegna bilunar í hvorum mótornum sem er.
„Varamótorarnir koma ekki í veg fyrir bilanir, en þeir geta takmarkað afleiðingarnar verulega. Það skiptir íbúa, atvinnulíf og gesti Vestmannaeyja miklu máli.“
Aðspurður um gang dýpkunar í Landeyjahöfn lýsir Ólafur ánægju með vinnu dýpkunarskipsins Sebastiano Caboto undanfarna daga. Skipið sinnir dýpkuninni á vegum Jan De Nul samkvæmt samningi fyrirtækisins við Vegagerðina.
„Það sem við höfum séð til nýja dýpkunarskipsins undanfarna daga lofar mjög góðu. Afköstin eru að okkar mati mun meiri en hjá skipinu sem sinnti verkefninu áður og það gefur okkur góðar vonir um framhaldið. Það er þó enn mikið efni sem þarf að fjarlægja.“
Hann segir öfluga dýpkun skipta sköpum fyrir nýtingu Landeyjahafnar, ekki síst þegar stutt hlé gefast á milli brælna.
„Við þurfum að geta nýtt þá glugga sem gefast til dýpkunar sem best. Því meira efni sem tekst að fjarlægja á þeim tíma, því betur stöndum við að vígi. Það er því full ástæða til að fagna því sem vel er gert. Bættur viðbúnaður vegna bilana og öflugri dýpkun vinna hvort með sínum hætti að sama markmiði: áreiðanlegri samgöngum milli lands og Eyja.“
Þessu tengt:
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að gert sé ráð fyrir útgjöldum vegna kaupa á varamótorum fyrir Herjólf í fjárlagafrumvarpi ársins 2027. Fjármagni hafi sérstaklega verið forgangsraðað til kaupanna. Þetta kemur fram í færslu ráðherra á Facebook í dag vegna umræðu um umsögn Herjólfs ohf. til fjárlaganefndar Alþingis. Eyjafréttir greindu frá því í gær að Herjólfur ohf. […]