Kótilettur til góðs í Höllinni
Hið árlega kótilettukvöld verður í Höllinni fimmtudaginn 15. október.

Kótilettuklúbbur Vestmannaeyja stendur fyrir kótilettukvöldi í Höllinni fimmtudaginn 15. október. Að þessu sinni rennur ágóði kvöldsins til Krabbavarna Vestmannaeyjum og Hollvinasamtaka Hraunbúða.

Húsið opnar klukkan 18:30 og borðhald hefst klukkan 19.

Á matseðlinum verða kótilettur í raspi með hefðbundnu meðlæti og eftirrétti.

Aðgangseyrir er 5.000 krónur.

Þátttaka er staðfest með greiðslu inn á reikning Kótilettuklúbbsins og er skráningarfrestur til þriðjudagsins 13. október.

Kótilettuklúbbur Vestmannaeyja var stofnaður árið 2014 og hefur staðið fyrir sambærilegum viðburðum í Eyjum. Með kvöldinu í ár verður safnað fyrir tvö félög sem starfa í þágu samfélagsins í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Kótilettur til góðs í Höllinni
Æfðu viðbrögð við eldsvoða í Kjarnanum
Aglow-konur hittast í kvöld
Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Arnar Pétursson valdi 18 leikmenn fyrir vináttuleiki gegn Póllandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.