Tíu til tólf nemendur Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum hafa undirbúið viðburðinn Tölum saman með aðstoð kennara. Samtalið fer fram í skólanum í dag, laugardaginn 10. október, klukkan 14–17.
„Undirbúningurinn hefur gengið býsna vel,“ segir Tinna Mjöll Frostadóttir, sem er meðal nemenda sem koma að verkefninu í Eyjum.
Tölum saman fer fram víða um land þar sem ólíkar kynslóðir og fólk með fjölbreyttan bakgrunn koma saman til að ræða spurninguna: „Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“
Verkefnið varð til að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, sem jafnframt er verndari þess. Samtal, félag til almannaheilla, stendur að verkefninu í samstarfi við skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld. Tilefnið er að 40 ár eru liðin frá leiðtogafundinum í Höfða.
Við skráningu velja þátttakendur málefni sem þeir vilja ræða og er þeim síðan raðað á borð út frá því. Við hvert borð verða einn til tveir ungir leiðbeinendur, svokallaðir lóðsar.
„Hlutverk unga fólksins er að leiða samtalið og sjá til þess að allir við borðið fái tækifæri til að tjá skoðun sína og hlusta,“ segir Tinna.
Hún tekur fram að þátttakendur verði ekki við sama borð allan tímann heldur verði hreyfing á milli borða meðan á samtalinu stendur. Í lokin skráir lóðs hvers borðs stutta setningu eða niðurstöðu um hvert málefni sem rætt var. Niðurstöður dagsins verða síðan teknar saman og birtar á talasaman.is.
Viðburðurinn er opinn öllum 16 ára og eldri, óháð bakgrunni, stöðu eða skoðunum. Húsið opnar klukkan 13:30 og samtalið hefst klukkan 14.
Skráning fer fram á talasaman.is og hvetur Tinna fólk til að skrá sig fyrir fram til að auðvelda skipulagið. Þeir sem mæta óskráðir geta þó einnig tekið þátt, skráð sig á staðnum og fengið úthlutað sæti við borð.
Tinnu finnst sjálfri mikilvægast að ræða hvernig ungt fólk geti tekið virkari þátt í mótun samfélagsins.
„Framtíðin er í höndum unga fólksins og tel ég því mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast.“
Aðspurð hvað hún vonist til að komi út úr deginum segir Tinna að ekki sé stefnt að einni ákveðinni niðurstöðu. Samtalið sjálft sé aðalmarkmiðið: að fólk á ólíkum aldri komi saman, hlusti hvert á annað og taki þátt í að móta framtíðina.
„Við lifum á tímum mikilla breytinga og stundum mikillar skautunar. Til þess að skapa sterkara samfélag er mikilvægt að við tölum saman.“
Samhliða samtölunum verður beint streymi frá Menntaskólanum í tónlist klukkan 14–17 í dag, laugardag.
Niðurstöður samtalanna verða einnig kynntar á viðburðinum Tal og tónar í Hörpu sunnudaginn 11. október klukkan 14. Þar heldur forseti Íslands ávarp og ungt fólk kynnir afrakstur dagsins.
Stúlknakór Kársness, Stúlknakór Reykjavíkur, Tjarnarkórinn, Fjallabræður og Karlakór Reykjavíkur flytja lög helguð friði og bjartri framtíðarsýn. Dagskráin tekur um klukkustund og verður í beinu streymi.
Nánari upplýsingar og skráning eru á talasaman.is.