Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar

Dýpkunarframkvæmdir í Landeyjahöfn ganga vonum framar, samkvæmt upplýsingum sem bæjarstjóri kynnti á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja sl. þriðjudag. Þar kom fram að dýpi í hafnarmynninu hefði aukist úr um 3,7 metrum í 6–7 metra á nokkrum dögum. Dýpkunarskip Jan De Nul hóf vinnu að einhverju marki föstudaginn 2. október. Skipið vann í um sex klukkustundir um […]

ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri

Karlalið ÍBV í fótbolta er fallið úr Bestu deild karla eftir 1-0 tap í botnslag gegn Þór, á Akureyri í dag. Leikurinn var í þriðju umferð neðri hluta deildarinnar. Þórsarar byrjuðu leikinn betur, en Eyjamenn unnu sig smám saman inn í leikinn. Vicente Valor átti fyrsta skot leiksins úr ágætri stöðu, en skot hans fór […]

ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu

Kvennalið ÍBV í handbolta vann góðan sigur á ÍR á útivelli í 5. umferð Olís deildar kvenna í dag. Eyjakonur urðu þar með fyrsta liðið til að leggja ÍR að velli á tímabilinu, en lokatölur urðu 26-30. ÍR konur byrjaðu leikinn betur og náðu þriggja marka forystu, 6-3, eftir tæpar átta mínútur. Heimakonur héldu forystunni […]

Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur

Í fyrsta þætti „Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma“ fá áhorfendur að skyggnast inn í mannlíf Eyjanna á síðustu öld. Elsta myndefnið er frá árinu 1924. Eyjafréttir birta hér upptöku frá Sagnheimum þar sem gamlar kvikmyndir úr Vestmannaeyjum eru sýndar með skýringum og samtali við sýningargesti. Staldrað er við einstök atriði, borin kennsl á fólk […]

Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif

Sumarið 1992 fórum við fjölskyldan til Bandaríkjanna og dvöldum þar í 3 mánuði. Ég var þarna nýfermdur og með fulla vasa af fermingarpeningum í landi tækifæranna! Og ég er ekki mikið að ýkja þegar ég segi að allir þeir peningar hafi farið í geisladiskakaup. Það komst ekki mikið meira að hjá mér á þeim tíma […]

Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum

Vestmannaeyjabær boðar til íbúaþings um atvinnustefnu þriðjudaginn 13. október. Þingið verður haldið í Eldheimum og hefst klukkan 17:15. Bærinn vinnur nú að mótun atvinnustefnu fyrir Vestmannaeyjar. Markmiðið er að móta skýra framtíðarsýn fyrir atvinnulíf í bænum og styrkja samkeppnishæfni og fjölbreytni atvinnugreina. Samkvæmt tilkynningu á vef bæjarins verður á íbúaþinginu rætt um stöðu atvinnumála í […]

„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“

Tíu til tólf nemendur Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum hafa undirbúið viðburðinn Tölum saman með aðstoð kennara. Samtalið fer fram í skólanum í dag, laugardaginn 10. október, klukkan 14–17. „Undirbúningurinn hefur gengið býsna vel,“ segir Tinna Mjöll Frostadóttir, sem er meðal nemenda sem koma að verkefninu í Eyjum. Tölum saman fer fram víða um land þar sem […]

Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór

Karlalið ÍBV í knattspyrnu sækir Þór heim á Akureyri í dag, laugardaginn 10. október, í afar mikilvægum leik í neðri hluta Bestu deildarinnar. Flautað verður til leiks klukkan 14:00 og geta Eyjamenn farið upp fyrir Þór með sigri. ÍBV situr á botni deildarinnar með 19 stig eftir 24 leiki. Þór er í ellefta sæti með […]

Eyjakonur mæta taplausu liði ÍR í dag

Kvennalið ÍBV í handknattleik sækir ÍR heim í dag, laugardaginn 10. október, í fimmtu umferð Olísdeildarinnar. Flautað verður til leiks klukkan 13:00 í Skógarseli í Reykjavík og mætast þar tvö lið sem hafa farið vel af stað á tímabilinu. ÍR situr í þriðja sæti deildarinnar með átta stig eftir fjóra leiki og hefur unnið þá […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.