ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Sandra Erlingsdóttir var markahæst í liði ÍBV með níu mörk. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta vann góðan sigur á ÍR á útivelli í 5. umferð Olís deildar kvenna í dag. Eyjakonur urðu þar með fyrsta liðið til að leggja ÍR að velli á tímabilinu, en lokatölur urðu 26-30.

ÍR konur byrjaðu leikinn betur og náðu þriggja marka forystu, 6-3, eftir tæpar átta mínútur. Heimakonur héldu forystunni fram yfir miðjan fyrri hálfleik, en ÍBV jafnaði metin í 9-9 eftir 23 mínútna leik. Eyjakonur náðu síðan þriggja marka forskoti, 9-12, skömmu fyrir hálfleik og leiddu með tveimur mörkum, 12-14, þegar flautað var til hálfleiks.

ÍBV hélt forystunni framan af síðari hálfleik, en ÍR jafnaði metin í 20-20 eftir rúmar sjö mínútur. Eyjakonur náðu aftur yfirhöndinni og voru þremur mörkum yfir, 22-25, þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Þær héldu forskotinu til leiksloka og tryggðu sér fjögurra marka sigur, 26-30.

Sandra Erlingsdóttir var atkvæðamest í liði ÍBV og var markahæst í leiknum með níu mörk. Markverðirnir Cornelia Hermanssen og Ólöf Maren Bjarnadóttir vörðu hvor um sig fjögur skot í marki ÍBV.

Með sigrinum kom ÍBV sér upp í 2. sæti deildarinnar og eru með átta stig. ÍR er í 4. sæti einnig með átta stig.

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 9 mörk, Andrea Jacobsen 7, Ásdís Halla Hjarðar 4, Birna Berg Haraldsdóttir 4, Klara Káradóttir 2, Agnes Lilja Styrmisdóttir 1, Amelía Dís Einarsdóttir 1, Ásta Björt Júlíusdóttir 1, Birna María Unnarsdóttir 1.

Úrslit dagsins í Olís deild kvenna:

Haukar 35 – 26 Selfoss

Fram 25 – 30 Valur

ÍR 26 – 30 ÍBV

 

 

Nýjustu fréttir

Úrslitakvöld Vöruhúsdeildarinnar í Höllinni á morgun
Feðgarnir mættust í þýsku B-deildinni – Erlingur fagnaði sigri
Gul viðvörun á Suðurlandi á laugardagskvöld
Heimir og Írar mæta Króatíu í umspilinu
Grýla gerir uppreisn fyrir fullu húsi
Viðar kvaddi tónlistarskólann á trommunum – myndir
Feðgar mætast í þýsku B-deildinni í kvöld
Segja skattóvissu draga úr hringsiglingum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.