Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
Vestmannaeyjabær vinnur að atvinnustefnu sem á að styrkja samkeppnishæfni og fjölbreytni atvinnulífs í Eyjum. Íbúar eru hvattir til að taka þátt í íbúaþingi í Eldheimum 13. október. Eyjafréttir/TMS

Vestmannaeyjabær boðar til íbúaþings um atvinnustefnu þriðjudaginn 13. október. Þingið verður haldið í Eldheimum og hefst klukkan 17:15.

Bærinn vinnur nú að mótun atvinnustefnu fyrir Vestmannaeyjar. Markmiðið er að móta skýra framtíðarsýn fyrir atvinnulíf í bænum og styrkja samkeppnishæfni og fjölbreytni atvinnugreina.

Samkvæmt tilkynningu á vef bæjarins verður á íbúaþinginu rætt um stöðu atvinnumála í Vestmannaeyjum og helstu tækifæri og áskoranir til framtíðar. Ætlunin er að skapa vettvang fyrir uppbyggilegt samtal og kalla fram hugmyndir og sjónarmið sem nýtast við mótun stefnunnar.

Íbúar eru hvattir til þátttöku svo sem flestar raddir heyrist. Lögð er áhersla á að atvinnustefnan endurspegli áherslur og stuðning Vestmannaeyjabæjar við fjölbreytta atvinnustarfsemi í bæjarfélaginu.

Samhliða íbúaþinginu stendur yfir rafræn könnun þar sem íbúar, atvinnurekendur og aðrir sem tengjast samfélaginu geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri. Könnunin er nafnlaus og svarfrestur er til og með 20. október. Eyjafréttir fjölluðu áður um könnunina og þar má nálgast hlekk til þátttöku.

Nýjustu fréttir

Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.