„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Nemendur FÍV leiða samtal um framtíð samfélagsins í dag :: Öllum 16 ára og eldri er boðið að taka þátt og húsið opnar klukkan 13:30
Hópmynd við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. Nemendur skólans leiða viðburðinn Tölum saman í dag klukkan 14–17. Mynd af vef FÍV.

Tíu til tólf nemendur Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum hafa undirbúið viðburðinn Tölum saman með aðstoð kennara. Samtalið fer fram í skólanum í dag, laugardaginn 10. október, klukkan 14–17.

„Undirbúningurinn hefur gengið býsna vel,“ segir Tinna Mjöll Frostadóttir, sem er meðal nemenda sem koma að verkefninu í Eyjum.

Tölum saman fer fram víða um land þar sem ólíkar kynslóðir og fólk með fjölbreyttan bakgrunn koma saman til að ræða spurninguna: „Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“

Verkefnið varð til að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, sem jafnframt er verndari þess. Samtal, félag til almannaheilla, stendur að verkefninu í samstarfi við skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld. Tilefnið er að 40 ár eru liðin frá leiðtogafundinum í Höfða.

Allir fái tækifæri til að tjá sig

Við skráningu velja þátttakendur málefni sem þeir vilja ræða og er þeim síðan raðað á borð út frá því. Við hvert borð verða einn til tveir ungir leiðbeinendur, svokallaðir lóðsar.

„Hlutverk unga fólksins er að leiða samtalið og sjá til þess að allir við borðið fái tækifæri til að tjá skoðun sína og hlusta,“ segir Tinna.

Hún tekur fram að þátttakendur verði ekki við sama borð allan tímann heldur verði hreyfing á milli borða meðan á samtalinu stendur. Í lokin skráir lóðs hvers borðs stutta setningu eða niðurstöðu um hvert málefni sem rætt var. Niðurstöður dagsins verða síðan teknar saman og birtar á talasaman.is.

Hægt að skrá sig á staðnum

Viðburðurinn er opinn öllum 16 ára og eldri, óháð bakgrunni, stöðu eða skoðunum. Húsið opnar klukkan 13:30 og samtalið hefst klukkan 14.

Skráning fer fram á talasaman.is og hvetur Tinna fólk til að skrá sig fyrir fram til að auðvelda skipulagið. Þeir sem mæta óskráðir geta þó einnig tekið þátt, skráð sig á staðnum og fengið úthlutað sæti við borð.

Tinnu finnst sjálfri mikilvægast að ræða hvernig ungt fólk geti tekið virkari þátt í mótun samfélagsins.

„Framtíðin er í höndum unga fólksins og tel ég því mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast.“

Samtalið sjálft er markmiðið

Aðspurð hvað hún vonist til að komi út úr deginum segir Tinna að ekki sé stefnt að einni ákveðinni niðurstöðu. Samtalið sjálft sé aðalmarkmiðið: að fólk á ólíkum aldri komi saman, hlusti hvert á annað og taki þátt í að móta framtíðina.

„Við lifum á tímum mikilla breytinga og stundum mikillar skautunar. Til þess að skapa sterkara samfélag er mikilvægt að við tölum saman.“

Streymi og dagskrá í Hörpu

Samhliða samtölunum verður beint streymi frá Menntaskólanum í tónlist klukkan 14–17 í dag, laugardag.

Niðurstöður samtalanna verða einnig kynntar á viðburðinum Tal og tónar í Hörpu sunnudaginn 11. október klukkan 14. Þar heldur forseti Íslands ávarp og ungt fólk kynnir afrakstur dagsins.

Stúlknakór Kársness, Stúlknakór Reykjavíkur, Tjarnarkórinn, Fjallabræður og Karlakór Reykjavíkur flytja lög helguð friði og bjartri framtíðarsýn. Dagskráin tekur um klukkustund og verður í beinu streymi.

Nánari upplýsingar og skráning eru á talasaman.is.

Streymi laugardaginn 10. október kl. 14–17.

Tal og tónar sunnudaginn 11. október kl. 14.

Nýjustu fréttir

„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
Eyjakonur mæta taplausu liði ÍR í dag
ÍBV tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Powerade bikarsins með sigri á ÍR
Fullnaðarhönnun World Class ekki skilað
Saltfiskur í forgrunni hjá félögum VSV á Conxemar
Cornelia Hermansson gengur til liðs við ÍBV
Íslandsbanki varar við svikasímtölum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.