Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
Afköst nýja dýpkunarskipsins eru sögð margfalt meiri en áður :: Bæjarráð bindur góðar vonir við framhaldið og leggur áherslu á að allt verði gert til að halda höfninni opinni
Dýpkunarskip Jan De Nul á milli garða í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Óskar P. Friðriksson

Dýpkunarframkvæmdir í Landeyjahöfn ganga vonum framar, samkvæmt upplýsingum sem bæjarstjóri kynnti á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja sl. þriðjudag. Þar kom fram að dýpi í hafnarmynninu hefði aukist úr um 3,7 metrum í 6–7 metra á nokkrum dögum.

Dýpkunarskip Jan De Nul hóf vinnu að einhverju marki föstudaginn 2. október. Skipið vann í um sex klukkustundir um kvöldið og beitti svokallaðri jetting-aðferð, þar sem sjó er dælt niður í sjávarbotninn til að losa sand og færa hann frá hafnarmynninu.

Breyttu aðferð við dýpkunina

Önnur lægð gekk yfir svæðið aðfaranótt sunnudags. Við mælingu þann dag var dýpið í hafnarmynninu um 4,1 metri og hófst vinna að nýju klukkan 20 um kvöldið. Að morgni mánudags hafði dýpið aukist í um fimm metra.

Á mánudagsmorgni var hætt að beita jetting-aðferðinni og farið yfir í hefðbundnari dýpkun. Ástæðan var sú að straumurinn framan við höfnina reyndist ekki nægilega sterkur til að flytja efnið frá svæðinu.

Á fundardegi var skipið að vinna á svokölluðum buffer-svæðum með það að markmiði að draga úr því hversu hratt sandur safnast fyrir framan hafnarmynnið.

Öflugri búnaður skiptir máli

Í fundargerðinni kemur fram að afköst skipsins séu margfalt meiri en þeirra aðila sem áður hafi sinnt dýpkuninni. Staðan væri því mun erfiðari ef nýr dýpkunaraðili væri ekki kominn með skip staðsett í Vestmannaeyjum, aukinn búnað og meiri afkastagetu.

Bæjarráð telur byrjunina lofa góðu og bindur góðar vonir við framhaldið. Ráðið leggur áherslu á að allt verði gert svo hægt sé að sigla í Landeyjahöfn, enda séu siglingar þangað gríðarlega mikilvægar fyrir samfélagið.

Nýjustu fréttir

Herjólfur aftur til Landeyjahafnar
ÍBV getur endurheimt annað sætið með sigri á Gróttu
Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Hrekkjavökuballið í Alþýðuhúsinu – myndir
Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.