ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
Úr leik ÍBV og Vals í síðustu umferð. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í fótbolta er fallið úr Bestu deild karla eftir 1-0 tap í botnslag gegn Þór, á Akureyri í dag. Leikurinn var í þriðju umferð neðri hluta deildarinnar.

Þórsarar byrjuðu leikinn betur, en Eyjamenn unnu sig smám saman inn í leikinn. Vicente Valor átti fyrsta skot leiksins úr ágætri stöðu, en skot hans fór framhjá markinu.

Heimamenn náðu forystunni eftir hálftíma leik þegar Christian Jakobsen kom boltanum í netið. Ari í Haraldstovu Petersen, markvörður ÍBV, náði ekki að handsama boltann sem fór í Christian og þaðan í markið. Staðan var því 1-0 í hálfleik.

Eyjamenn byrjuðu síðari hálfleikinn vel og náðu að koma boltanum í netið þegar Mathias Edeland skallaði hann í markið. Markið var hins vegar dæmt af vegna brots og staðan hélst því óbreytt. Þór hélt forystunni út leikinn og vann 1-0 sigur.

Eftir tapið situr ÍBV í neðsta sæti deildarinnar með 19 stig þegar tvær umferðir eru eftir. Þór er í næstneðsta sæti með 24 stig og KA situr þar fyrir ofan með 26 stig. Þar með er ljóst að ÍBV er fallið úr Bestu deildinni þar sem þeir eiga aðeins möguleika á að ná Þórsurum, en geta ekki lengur náð KA mönnum að stigum.

Úrslit dagsins í neðri hluta bestu deild karla:

Stjarnan 0 – 3 KA

Valur 3 – 5 FH

Þór 1 – 0 ÍBV

Nýjustu fréttir

Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Hrekkjavökuballið í Alþýðuhúsinu – myndir
Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.