Lionsklúbbur Vestmannaeyja og Apótekarinn bjóða upp á ókeypis blóðsykursmælingu á morgun, fimmtudaginn 12. nóvember frá kl. 13:00 til 16:00. Mælingin fer fram í Apótekaranum að Vesturvegi 5 í Vestmannaeyjum.
Mælingin tekur um hálfa mínútu og þátttakendur fá niðurstöðuna strax. Þeim sem mælast með hátt blóðsykursgildi verður vísað til heilsugæslunnar til frekari athugunar.
Í tilkynningu Lionsklúbbs Vestmannaeyja segir að mælingarnar hafi áður bjargað lífi fólks hér í Eyjum. Þar kemur fram að dæmi séu um að fólk hafi ekki gert sér grein fyrir stöðu heilsu sinnar fyrr en það kom í mælingu.
Lionsklúbburinn hefur um árabil boðið upp á ókeypis blóðsykursmælingar í samstarfi við Apótekarann. Apótekarinn leggur til aðstöðu og mælingarstrimla og sér um mælingarnar á staðnum. Verkefnið er hluti af áratugalöngu starfi Lionshreyfingarinnar um allan heim við að vekja athygli á sykursýki og stuðla að því að hún greinist fyrr.
Lionsklúbburinn og Apótekarinn hvetja bæjarbúa til að líta við á fimmtudag og nýta sér ókeypis mælingu.