ÍBV tekur við móttöku á dósum og flöskum í Vestmannaeyjum af Heimaey, vinnu- og hæfingarstöð, í febrúar 2027. Þetta kemur fram í tilkynningu Endurvinnslunnar á samfélagsmiðlum.
Endurvinnslan fagnar samstarfinu við ÍBV og þakkar starfsfólki Heimaeyjar fyrir samstarfið og þá þjónustu sem stöðin hefur veitt við móttökuna í gegnum árin.
Nánari upplýsingar um nýtt fyrirkomulag verða auglýstar síðar, þar á meðal hvar og hvenær hægt verður að skila dósum og flöskum.