Útvegsbændafélag Vestmannaeyja, Jötunn sjómannafélag og Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi vara við því að takmarkanir á útflutningi óunnins afla geti lækkað söluverð aflans og þar með tekjur sjómanna. Félögin vilja að útflutningur verði áfram raunhæfur kostur þegar aðstæður kalla á hann.
Í sameiginlegri ályktun félaganna kemur fram að atvinnuvegaráðherra hafi til skoðunar hvort og með hvaða hætti setja megi skorður við útflutningi á óunnum afla.
Félögin benda á að útflutningur á óunnum fiski eigi sér langa hefð og gefi útgerðum svigrúm til að bregðast við breyttum aðstæðum. Útflutningur geti meðal annars verið nauðsynlegur þegar vinnslugeta er takmörkuð, vinnuafl skortir eða veður hamlar. Gæði og ástand aflans geti einnig ráðið því hvort hagkvæmara sé að flytja hann út eða vinna innanlands.
Félögin telja að skylda til að ráðstafa afla til vinnslu innanlands, óháð aðstæðum, geti aukið áhættu í rekstri og haft áhrif á ákvarðanir um veiðar og löndun. Það geti aftur haft áhrif á umfang veiða og atvinnuöryggi sjómanna.
Félögin kalla eftir því að áhrif mögulegra takmarkana á samkeppni, verðmætasköpun, kjör sjómanna og byggðaþróun verði metin. Þau leggja jafnframt áherslu á að tillögur um takmarkanir samræmist lögum og alþjóðlegum skuldbindingum Íslands, þar á meðal EES-samningnum.
Ályktunin fer hér á eftir í heild.
Atvinnuvegaráðherra hefur til skoðunar hvort og með hvaða hætti setja megi skorður við útflutningi á óunnum afla. Af því tilefni telja undirritaðir aðilar það mikilvægt að eftirfarandi sjónarmið liggi skýrt fyrir.
Íslenskur sjávarútvegur starfar á grundvelli frjálsra viðskipta og skuldbindinga Íslands samkvæmt EES-samningnum, þar sem meginreglan er frjáls vöruflutningur og jafnræði í samkeppni. Allar íhlutanir hins opinbera í ráðstöfun afla eða takmarkanir á útflutningi verða að samræmast þessum skuldbindingum og byggja á málefnalegum og hlutlægum forsendum og ekki síst fyrirsjáanleika.
Mikilvægt er að útgerðum og fyrirtækjum í sjávarútvegi verði áfram heimilt að ráðstafa afla með þeim hætti sem hentar hverju sinni, með hliðsjón af rekstrarlegum, tæknilegum og markaðslegum aðstæðum. Slíkt svigrúm er forsenda heilbrigðrar samkeppni, hagkvæmni í rekstri og verðmætasköpun í greininni.
Íslenskur sjávarútvegur býr að langri og rótgróinni hefð fyrir útflutningi á óunnum fiski. Sú ráðstöfun hefur verið mikilvægur hluti af atvinnugreininni og gert fyrirtækjum kleift að bregðast við breytilegum aðstæðum, bæði innanlands og á alþjóðamörkuðum. Útflutningur á óunnum afla hefur þannig verið eðlilegur þáttur í rekstri þessara fyrirtækja.
Sérstaklega ber að hafa í huga að útflutningur á óunnum afla getur verið nauðsynlegur við tilteknar aðstæður, svo sem vegna takmarkana í vinnslugetu, skorts á vinnuafli, óhagstæðra veðurfarslegra skilyrða, eða þegar gæði og ástand fisksins gera það að verkum að hagkvæmara er að ráðstafa honum með öðrum hætti en til vinnslu innanlands.
Auk framangreinds er nauðsynlegt að horfa sérstaklega til áhrifa mögulegra hafta á útflutning óunnins afla á sjómenn og kjör þeirra. Takmarkanir á ráðstöfun afla geta haft bein áhrif á söluverð og þar með tekjur sjómanna.
Ef útgerðum er gert skylt að ráðstafa afla til vinnslu innanlands, óháð aðstæðum, getur það leitt til lægra afurðaverðs, minni sveigjanleika í sölu og aukinnar áhættu í rekstri. Slíkt getur dregið úr verðmætasköpun og haft neikvæð áhrif á sjómenn, bæði hvað varðar laun og stöðugleika í atvinnu.
Þá ber einnig að hafa í huga að skertur sveigjanleiki í ráðstöfun afla getur haft áhrif á ákvarðanir um veiðar, löndun og nýtingu afla, sem aftur getur haft áhrif á umfang veiða og atvinnuöryggi sjómanna, einkum við óvenjulegar aðstæður eins og erfiðar veðurfarslegar aðstæður eða þegar markaðsaðstæður eru óhagstæðar.
Með hliðsjón af framangreindu er mikilvægt að allar hugmyndir um skerðingar á útflutningi á óunnum afla séu unnar í samræmi við lög og alþjóðasamninga. Slíkar hugmyndir skulu byggja á vandaðri greiningu á áhrifum á samkeppni, verðmætasköpun, kjör sjómanna og byggðaþróun, og tryggja að útflutningur á óunnum afla haldist áfram raunhæfur og lögmætur valkostur þegar aðstæður kalla á slíka ráðstöfun.
Vestmannaeyjum, dags. 11. nóvember 2026
Kolbeinn Agnarsson
f.h. Jötuns sjómannafélags
Bergur Guðnason
f.h. Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi
Viðar Elíasson
f.h. Útvegsbændafélags Vestmannaeyja