Fórnarlamba umferðarslysa minnst í Eyjum - myndir
Viðbragðsaðilar og aðrir þátttakendur við kirkjugarðshliðið í Vestmannaeyjum þar sem fórnarlamba umferðarslysa var minnst á sunnudagskvöld. Myndir: Eyjafréttir/Óskar Pétur.

Fórnarlamba umferðarslysa var minnst í Vestmannaeyjum í gær, sunnudaginn 15. nóvember. Minningarmessa fór fram í Landakirkju klukkan 13 og um kvöldið var haldin kertastund við kirkjugarðshliðið. Óskar Pétur tók myndir á báðum stöðum.

Í messunni sagði Þóranna Sigurbergsdóttir frá reynslu sinni af því að missa son sinn í bílslysi. Viðbragðsaðilar í Eyjum tóku þátt í messunni og kirkjugestum gafst tækifæri til að kveikja á kerti til minningar um þau sem látist hafa í umferðarslysum. Kór Landakirkju söng undir stjórn Kitty Kovács.

Kertastundin við kirkjugarðshliðið hófst klukkan 20. Alls voru minningarstundir haldnar á 17 stöðum á landinu í tilefni af alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa, samkvæmt innviðaráðuneytinu.

Boðar fræðsluátak gegn hraðakstri

Á minningardeginum í ár var sjónum sérstaklega beint að ungu fólki í umferðinni og hættunni sem fylgir hraðakstri. Í ávarpi við minningarathöfn í Fossvogi boðaði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fræðsluátak um hraðakstur í samstarfi við ungmenni, foreldra og skólasamfélagið.

Ráðherra sagðist einnig ætla að kynna tillögur að breytingum á umferðarlögum í samráðsgátt stjórnvalda á næstu dögum. Meðal markmiða þeirra er að styrkja heimildir lögreglu til að bregðast við alvarlegum umferðarlagabrotum.

Myndir Óskars Péturs hér að neðan eru frá minningarmessunni í Landakirkju og kertastundinni við kirkjugarðshliðið.

Nýjustu fréttir

Fórnarlamba umferðarslysa minnst í Eyjum – myndir
Vara við áhrifum útflutningstakmarkana á kjör sjómanna
Vikan í Eyjum: Hundrað ára afmæli, salernin á Vigtartorgi og stig gegn toppliðinu
Elmar markahæstur í sigri Nordhorn-Lingen
Sigurganga Erlings heldur áfram í þýsku B-deildinni
Fæst nóg stórgrýti í brimvarnargarðinn við Eiðið?
Rúmlega 40 milljóna salernisframkvæmd hélt áfram án byggingarleyfis
Svekkjandi tap hjá Heimi og lærisveinum gegn Austurríki
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.