Nú er sá tími ársins að renna upp þar sem dagatalið fyllist, verkefnalistarnir lengjast og við erum á þeytingi milli staða. Það þarf að mæta hér og þar, græja hitt og þetta og allt á að vera tilbúið helst í gær!
Mitt í öllu þessu ati má samt ekki gleymast það sem skiptir mestu máli – samveran og samtölin.
Í dag, á degi íslenskrar tungu, langar mig að minna á hversu dýrmætt það er að tala saman. Ekki bara til að skiptast á upplýsingum heldur líka til að tengjast, njóta samverunnar og gefa börnunum okkar tækifæri til að efla málþroska sinn.
Sem talmeinafræðingur hef ég oft bent á að málörvun barna þarf hvorki að vera flókin né tímafrek. Hún snýst ekki endilega um að setjast niður með sérstök verkefni, spil eða bækur. Hún getur einfaldlega verið hluti af því sem við erum hvort sem er að gera í daglegu lífi.
Þegar við bökum smákökur fyrir jólin eða eldum matinn getum við lýst því sem við gerum, nefnt hráefnin og talað um hvað við þurfum að gera fyrst, hvað kemur næst og hvað þarf að sækja í ísskápinn eða skápana. Hvaða áhöld þarf að nota, lesa uppskriftirnar og skipuleggja sig. Í búðinni getum við spjallað um matvörurnar, hvar þær eru geymdar og hvað við ætlum að nota þær í, biðja börnin að sækja það sem þarf að kaupa og leyfa þeim að vera með í að velja hvað á að baka eða hvað á að vera í matinn. Þegar við klæðum okkur í útifötin getum við rætt veðrið og hvers vegna við þurfum húfu, vettlinga og úlpu, hvert erum við að fara, hvað erum við að fara að gera, hvað ætlum við að gera á eftir, á morgun eða ræða hvað við gerðum í gær.
Verum líka meðvituð um að nota fjölbreytt orð! Til dæmis í bíltúrnum, skoðum jólaljósin og notum mismunandi orð, ekki bara „sjáðu hvað þetta eru flott jólaljós“ heldur kannski „sjáðu hvað þetta eru glæsileg, skrautleg eða litrík jólaljós!“ Börn læra ný orð með því að heyra þau notuð í merkingarbæru samhengi.
Mikilvægt er að hafa í huga að málörvun snýst ekki um að tala linnulaust eða spyrja börnin endalausra spurninga. Hún snýst um samskipti og samveru. Hún snýst um að hlusta, spjalla, gefa sér tíma og sýna einlægan áhuga á því sem börnin hafa að segja og ekki síst að leyfa börnunum að taka þátt.
Í síðustu grein minni, „Hvað ef internetið myndi loka kl. 18?“, hvatti ég fólk til að prófa að leggja símann frá sér í 15 mínútur á dag og vera til staðar í samverunni.
Kannski er einmitt tilvalið að rifja þá áskorun upp núna þegar annríkið í kringum jólin eykst.
Bara 15 mínútur í senn. Enginn sími, engin truflun. Bara samvera og samtöl.
Hver veit – kannski verða þessar 15 mínútur að 20 mínútum, svo 30 mínútum og áður en við vitum af erum við svo upptekin af því að spjalla, hlæja, leika okkur eða brasa saman að við gleymum alveg að kíkja á símann!
Nú þegar við fögnum degi íslenskrar tungu skulum við líka muna að ein besta leiðin til að hlúa að tungumálinu okkar er að nota það! Nota fjölbreytt orð, segja sögur, útskýra, lýsa, spyrja, hlusta og leyfa börnunum að taka virkan þátt í samtölunum.
Svo þegar jólaannríkið fer á fullt skulum við muna að það þarf ekki alltaf að vera eitthvað sérstakt á dagskrá til að eiga góða samverustund. Stundum gerast nefnilega dýrmætustu hlutirnir í allra hversdagslegustu augnablikunum.
Kannski ættum við að bæta einu atriði á verkefnalistann fyrir jólin: Að leggja listann stundum frá okkur – ásamt símanum – og einfaldlega njóta samverunnar. ❤️
Tinna Tómasdóttir
Talmeinafræðingur, mamma og verðandi amma.