Ellert Scheving segir upp hjá ÍBV
Ellert Scheving Pálsson tók við starfi framkvæmdastjóra ÍBV-íþróttafélags í maí 2023. Hann hefur sagt upp störfum og hyggst vinna út þriggja mánaða uppsagnarfrest sinn. Mynd: Eyjafréttir/Óskar Pétur

Ellert Scheving Pálsson hefur sagt upp starfi sínu sem framkvæmdastjóri ÍBV-íþróttafélags. Hann staðfestir þetta í svari við fyrirspurn Eyjafrétta.

Uppsögnin tekur gildi um mánaðamótin nóvember og desember. Ellert segist ætla að vinna út þriggja mánaða uppsagnarfrest sinn. Hann tók við starfinu í maí 2023.

Hefur hugsað sér að snúa sér að öðru

„Ég hef í einhvern tíma verið að hugsa um að fara að snúa mér að einhverju öðru. Þetta verða næstum fjögur ár hjá mér í þessu starfi. Einhverjir myndu segja að það væri nóg,“ segir Ellert.

„Þetta hefur verið bæði krefjandi og virkilega skemmtilegt. Einstaklega góður skóli.“

Nýjustu fréttir

Ellert Scheving segir upp hjá ÍBV
Stefna að því að hámarksbið eftir greiningu verði 12–18 mánuðir
Er samveran komin á verkefnalistann fyrir jólin?
Fórnarlamba umferðarslysa minnst í Eyjum – myndir
Vara við áhrifum útflutningstakmarkana á kjör sjómanna
Vikan í Eyjum: Hundrað ára afmæli, salernin á Vigtartorgi og stig gegn toppliðinu
Elmar markahæstur í sigri Nordhorn-Lingen
Sigurganga Erlings heldur áfram í þýsku B-deildinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.