Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðar nær fullfermi í Neskaupstað að loknum veiðum á Glettinganesflaki. Skipstjórarnir segja veðrið hafa verið betra en í undanförnum veiðiferðum og telja að ýsan sé farin að ganga á miðin austur af landinu. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, segir að veiðiferðin hafi staðið í þrjá og hálfan sólarhring og að gott veður hafi verið allan tímann. Skipið fór beint á Glettinganesflak og hélt sig þar út túrinn.
„Í þessum túr er ýsa um 40% af aflanum og það er nýtt og gleðilegt. Það verður að veiða fleira en þorsk og því er afskaplega mikilvægt að ýsan skuli sýna sig,“ segir Egill Guðni í samtali við Síldarvinnsluna.
Bergey var einnig á Glettinganesflaki allan túrinn. Jón Valgeirsson skipstjóri segir að mörg skip hafi verið á svæðinu og að veiðin hafi verið betri en að undanförnu. Hann fagnar því að töluvert hafi fengist af ýsu.
Bæði skipin héldu aftur til veiða strax að löndun lokinni. Skipstjórarnir voru síður ánægðir með veðurspána fyrir næstu daga.