
Það er komið að þeim tíma ársins þegar jólalögin fara að hljóma, jólaljósin lýsa upp skammdegið og jóla eftirvæntingin fer að gera vart við sig. Fyrsti sunnudagur í aðventu er í dag og það þýðir aðeins eitt – jólin eru handan við hornið.
Jólasveinarnir eru farnir að láta sjá sig í bænum en þeir hafa fylgst með gangi mála ofan úr fjalli allt árið. Núna þegar stutt er í jólin kíkja þeir stundum í heimsókn til okkar og hafa þeir bræður, Hurðaskellir og Askasleikir verið sérstaklega duglegir að láta sjá sig. Hurðaskellir segir að þeir tveir ásamt Stúfi séu ekki eins feimnir og hinir bræðurnir en vandamálið með Stúf er að hann sé svo lítill að hann fýkur alltaf þegar að það er vont veður, sem gerir líf hans töluvert snúið þar sem hann býr í fjalli á Heimaey og þar er svo sannarlega ekki alltaf logn.
Hurðaskellir er spenntur fyrir jólunum en óvæntur gestur lét sjá sig eftir að Hurðaskellir kvaddi.
Þú hefur horft á ókeypis kynningu. Gerstu áskrifandi til að horfa á myndbandið í fullri lengd.
Gerast áskrifandi Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn